Xi Jingping forseti Kína og eiginkona hans Peng Liyuan komu í opinbera heimsókn til Bandaríkjanna í gær. Donald Trump Bandaríkjaforseti tók á móti þeim á Andrews-herflugvellinum fyrir utan Washington, ásamt forsetafrúnni Melaniu Trump. Hljómsveit hersins spilaði þjóðsöngva þjóðanna undir móttökunni og tvær B-1 ofurþotur flugu yfir af þessu tilefni.
Þetta er í þriðja sinn sem forsetarnir hittast. Fram undan eru fundir og veisla í Hvíta húsinu. Bandaríkjaforseti staðfesti í gær að stríðið við Íran verði til umræðu auk annarra umræðuefna.
Ekki er búist við að greint verði frá viðskiptasamningum milli þjóðanna en engir kínverskir forstjórar eru í sendinefnd Xi, að sögn tveggja ónafngreindra heimildarmanna AFP fréttaveitunnar.
Hins vegar verða helstu forstjórar bandarískra tæknifyrirtækja og gervigreindarfyrirtækja í veislunni í Hvíta húsinu svo ætla má að gervigreind beri á góma.
Heimsókninni lýkur á morgun þegar forsetarnir og eiginkonur þeirra drekka saman te í Hvíta húsinu og heimsækja bandaríska þjóðskjalasafnið þar sem sjálfstæðisyfirlýsing Bandaríkjanna er varðveitt.
Fjármálaráðherra Bandaríkjanna, Scott Bessent, greindi frá því í gær að yfirvöld í Washington og Peking hefðu samþykkt að framlengja hlé sem hefur verið á deilum þjóðanna um tolla um tvo mánuði en það átti að renna út þann 10. nóvember.