Margrét Erlendsdóttir, upplýsingafulltrúi heilbrigðisráðuneytisins, staðfestir þetta í samtali við Vísi en Rúv greindi fyrst frá.
Hún segir að greint hafi verið frá uppsögnunum á starfsmannafundi í dag.
Uppsagnirnar hjá heilbrigðisráðuneytinu koma í framhaldi af uppsögnum í dómsmálaráðuneytinu í síðustu viku en þar voru sex stöðugildi lögð niður með vísan til hagræðingarkröfu stjórnvalda.