Það var þrautin þyngri að koma öllum þingfulltrúum landsþings til Akureyrar í dag sökum verkfalls flugvirkja. Sambandið hafði þó vaðið fyrir neðan sig og var með rútu til taks fyrir þingfulltrúa af höfuðborgarsvæðinu í dag.
„Það var ekki vandræðalaust. Enda treysta menn á flugið. Þarna finnur maður að flugið er almenningssamgöngurnar innanlands að hluta til. Þannig að fólk keyrði, alls staðar að af landinu og átti notalega stund í fallegu landi, það er ekki vandræðin. En ég held að það séu allir komnir, ég sé ekki betur,“ segir Jón Björn Hákonarson fráfarandi formaður stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga. Ný stjórn verður kjörin á þinginu og kosið var um nýjan formann í júní. Almar Guðmundsson, bæjarstjóri í Garðabæ tekur við embættinu á föstudaginn.
„Ég líka bara kveð þetta sáttur. Vonandi hef ég staðið mig sæmilega. Ég er bara ánægður og veit að þetta er að fara í hendurnar á fínu fólki.“
Mörg mál sem brenna á sveitarfélögunum
Þingið stendur fram á föstudag og mörg mál brenna á sveitarstjórnarfulltrúum. Meðal annars er stefnumótun sambandsins og ýmislegt tengt fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar.
„Það er auðvitað ýmislegt. Við erum að fara að marka þessa stefnu til fjögurra ára eins og við sjáum hana í dag. Auðvitað vitum við að það eru fjölmörg heit mál hjá sveitarfélögunum. Farsældarinnleiðingin, eða sú niðurfelling þeirra fjármuna. Það eru auðvitað heilmiklar áskoranir í fjármögnun málaflokks fatlaðra og fleira.“