Um tíu voru handteknir í viðamikilli lögregluaðgerð á höfuðborgarsvæðinu á þriðjudag. Þar af eru sex í gæsluvarðhaldi. Í tilkynningu frá lögreglu í dag kemur fram að málið varði fíkniefnamisferli og peningaþvætti. Framkvæmdar voru húsleitir og handtökur á nokkrum stöðum og lagt var hald á bæði fjármuni og fíkniefni.
Annar bílasali var líka handtekinn í stóru lögregluaðgerðinni