Forstjóri Icelandair segir óskynsamlegt að beita verkföllum gegn félaginu í kjaradeilu eins og staða efnahagsmála er. Hann vonar þó að betri taktur náist í samtölum við flugvirkja næstu vikur. Formaður flugvirkjafélags Íslands segist upplifa meiri vilja frá Icelandair til að ná sátt.
Flugvirkjafélag Íslands aflýsti fyrir hádegi verkfalli sem hófst á miðnætti. Skömmu áður hafði ríkisstjórnin samþykkt að kalla þing saman og leggja fram frumvarp að lögum gegn verkfallinu.
„Nú lofa menn að girða sig í brók“
Óskar Einarsson formaður flugvirkjafélagsins sagði að ákveðið hefði verið að aflýsa vinnustöðvun, að sinni, að beiðni Icelandair og í samráði við ríkissáttasemjara.
„Fyrirtækið biðlaði til okkar í morgun og hafði samband og óskaði innilega eftir því að setjast niður,“ segir Óskar.
Hvað á að gerast á þessum fjórum vikum sem hefur ekki gerst undanfarna níu mánuði?
„Nú lofa menn að girða sig í brók og stýra þessu betur.“
Ert þú bjartsýnn á að samningar náist inna fjögurra vikna?
„Já, ef að menn meina það sem þeir sögðu í morgun. Þá er ég bjartsýnn.“
Áður hafði Icelandair hafnað boði flugvirkja um að fresta verkfallinu. Bogi Nils Bogason forstjóri Icelandair segir að ekki hafi verið hægt að samþykkja frestun með svo skömmum fyrirvara, af því hljótist líka mikið tjón.
Hann telur ekki skynsamlegt að beita verkfallsaðgerðum í núverandi aðstæðum.
„Markmiðið er að ná samningum á næstu fjórum vikum. Ekki hvað okkur varðar. Við vorum með þetta verkefni fyrir framan okkur að það var verkfall komið í gang sem að hefur mjög neikvæð áhrif á starfsemi og okkar viðskiptavini og ég vil biðja þá afsökunar sem lentu í óþægindum út af þessu,“ segir Bogi Nils.
Samningsaðilar ákváðu að halda viðræðum áfram næstu fjórar vikur. Óskar Einarsson, formaður Flugvirkjafélags Íslands, segir að á fundi með Icelandair í morgun hafi verið farið yfir ákveðin atriði. Flugvirkjar hafi ekki dregið úr sínum kröfum.
Bogi Nils segir að betri takt þurfi í samtalið.
„Setjast yfir málin og reyna að ná sameiginlegum skilningi á stöðu félagsins, samkeppnisstöðunni, og að sjálfsögðu berum við fulla virðingu fyrir því að okkar starfsmenn eru í þessu íslenska umhverfi þar sem kostnaður er að hækka, verðbólga er mikil. En við náum aldrei skynsamlegri niðurstöðu í samningana nema við setjumst yfir þessa flóknu og krefjandi stöðu í sameinginu og reynum að ná saman skilningi.“