Dagný Ósk Vestmann lést í nótt á líknardeild Landspítalans eftir erfiða baráttu við krabbamein. Frá þessu greinir Vísir. Dagný var 38 ára gömul og lætur eftir sig eiginmann og tvö börn. Hún hafði undanfarið fjallað opinskátt um veikindin, en hún greindist fyrst með brjóstakrabbamein árið 2017 og svo aftur árið 2023 en þá hafði meinið dreift sér í eitla, lifur og bein.
Dagný Ósk er látin aðeins 38 ára að aldri