Fyrr í þessum mánuði náði Yunzhi meðaltímanum 4,52 sekúndum á alþjóðlega viðurkenndu móti í borginni Wuhan. Hún sló svo sitt eigið met á öðru móti í borginni Guangzhou þremur dögum síðar. Þá náði hún meðaltímanum 4,27 sekúndum.
Viðurkennd Rúbiks-kubbamót virka oftast þannig að hver keppandi fær fimm tilraunir. Besti og versti tími telja ekki með og tekið er meðaltal af þeim þremur sem eftir eru.
Yunzhi brosti út að eyrum þegar hún náði að leysa eina tilraunina á aðeins 3,54 sekúndum. Geri aðrir betur, segjum við nú bara.