Ísfélagið hefur sagt upp sextán starfsmönnum í rækjuvinnslu fyrirtækisins á Siglufirði. Aðstoðarforstjóri segir ástæðuna vera hráefnisskort, en stefnt sé á að hefja vinnslu á ný með vorinu.
Vefmiðillinn Trölli.is sagði fyrstur frá þessu.
Sextán starfsmönnum í rækjuvinnslu Ísfélagsins var greint frá þessu í gær og uppsagnirnar taka gildi um áramót. Í vinnslunni á Siglufirði hefur fyrst og fremst verið unnið úr norskri kaldsjávarrækju síðustu ár eftir að veiðar á Íslandsmiðum minnkuðu, en í ár fékkst minna af hráefni erlendis frá en undanfarin ár. Rækjan er keypt að sumri og þá birgja vinnslurnar sig upp til að vinna úr henni að vetri.
Ólafur H. Marteinsson er aðstoðarforstjóri hjá Ísfélaginu.
„Við sáum bara fram á það að eftir áramót þá munum við ekki hafa hráefni til vinnslu næstu 2 til 3 mánuði, það er að segja við munum örugglega ekki hafa hráefni í janúar, febrúar og vonandi náum við að fara af stað aftur í mars.“
Á Siglufirði er ein af fjórum rækjuvinnslum sem eftir eru á Íslandi, en í kringum aldamót töldu þær á annan tug.
Ólíklegt að veiðar aukist hér á næstunni
Ísfélagið hefur einnig eigin rækjutogara sem gerir út frá Siglufirði. Nýjustu mælingar á rækjustofni við Ísland segir Ólafur þó ekki gefa tilefni til sérstakrar bjartsýni um að betur fari að veiðast hér heima - en væntir þess þó að vinnslan geti hafist á ný þegar veiðar glæðast erlendis.
„Hún var satt best að segja ekki uppörvandi, það virðist vera lítil nýliðun í rækju. En ég hef nú trú á því að það verði hægt að fá hráefni til dæmis frá Noregi.“