Wolt býður ekki öllum sendlum sínum til fundar á morgun og aðeins fimm þeirra fá að funda með fyrirtækinu. Sendlarnir funduðu með starfsmönnum Eflingar í morgun til að ná utan um sín helstu kröfumál og búa sig undir fundinn með forsvarsmönnum Wolt.
Þegar fréttastofa ræddi við einn talsmanna sendlanna í morgun hafði hann takmarkaðar upplýsingar um það hvernig fundurinn færi fram eða hversu mörgum hefði verið boðið.
Óljóst hverjir fá að fara á fundinn
Um 60 Wolt-sendlar lögðu tímabundið niður störf fyrr í mánuðinum til að vekja athygli á málstað sínum. Laun þeirra höfðu að eigin sögn lækkað um helming frá byrjun árs.
Sá sem hvað oftast hefur gengið fram fyrir skjöldu í kjarabaráttu sendlanna er Georghe Mihai Cacaliceanu. Hann segir að hann hafi kallað til fundarins í dag í samvinnu við Eflingu vegna þess að Wolt bjóði ekki öllum sendlum til fundar við sig.
„Margir skráðu sig á fundinn en enginn þeirra var valinn til að mæta,“ segir Georghe Mihai í samtali við fréttastofu. „Svo við vitum ekki hversu margir eru að fara á þennan fund á morgun.“
Hann segist þó ánægður með að hafa sjálfur fengið boð þar sem það gefi honum gott tækifæri til að koma áhyggjum sendlanna á framfæri.
Uppbyggilegri samræður á mannfærri fundi
Christian Kamhaug, samskiptastjóri fyrir Wolt í Noregi og á Íslandi, staðfestir í skriflegu svari við fyrirspurn fréttastofu að sendlarnir hafi þurft að skrá sig til að komast á fundinn vegna takmarkaðs pláss.
Fyrirtækið geri ráð fyrir að þeir velji sér talsmenn en svo virðist sem misskilningur hafi orðið í samskiptum. Sendlar hafi allir fengið tækifæri til þess að skrá nafn sitt í Google-skjal.
„Við fengum tólf skráningar í skjalið, þar af var hægt að staðfesta að ellefu þeirra væru virkir Wolt-sendlar,“ segir í svari Kamhaug. „Vegna takmarkaðs pláss og til að halda umræðum viðráðanlegum og uppbyggilegum þá buðum við fimm sendlum.“ Wolt-sendlar skipta hundruðum á Íslandi.
Hann segir að valið hafi að öðru leyti verið handahófskennt, nema að einn sendill með stutta starfsreynslu hafi verið valinn til að gæta fjölbreytni í hópnum. Sá hefur starfað hjá fyrirtækinu í þrjá mánuði.
„Sendlum sem fengu ekki boð á fundinn var sendur tölvupóstur til að þakka þeim fyrir skráninguna, þeim greint frá því að pláss væri takmarkað og þeir látnir vita að haft yrði samband við þá í dag ef pláss myndi losna,“ segir Kamhaug jafnframt.
Myndi glaður ganga í stéttarfélag
Efling hefur verið Wolt-sendlunum innan handar þrátt fyrir að þeir séu ekki meðlimir í stéttarfélaginu. Georghe Mihai segir starfsmenn Eflingar aðstoða þau við að koma kröfum sínum betur á framfæri og átta sig á því hvernig best sé að nálgast fundina.
Aðspurður hvort það komi til greina að ganga í Eflingu segir hann það ekki raunhæfan möguleika í augnablikinu. „Eins og þú líklega veist þá býður Wolt ekki upp á starfssamninga, við erum sjálfstætt starfandi. Ef það kemur að því að Wolt geti boðið upp á grunnsamninga myndi ég glaður ganga í stéttarfélag.“