Fagfélögin gera alvarlegar athugasemdir við ummæli Ásgeirs Jónssonar seðlabankastjóra í hádegisfréttum í dag um að hægja þurfi á launahækkunum og að ekki sé hægt að bæta launafólki hækkun olíuverðs.
Í ályktun félagsins segir að ummæli Ásgeirs um að heimilin gætu þurft að taka á sig hækkun olíuverðs veki sérstaka athygli í ljósi nýrrar skýrslu Seðlabankans um fjármálastöðugleika sem var birt í morgun.
Hvergi talað um að laun séu ógn við fjármálastöðugleika
Þar séu helstu hættur sem steðja að efnahags- og fjármálakerfinu sagðar felast í alþjóðlegum ófriði, hækkandi hrávöruverði, háum vöxtum, óróa á erlendum mörkuðum og vaxandi kerfisáhættu í byggingariðnaði. Í skýrslunni sé aftur á móti hvergi að því vikið að laun séu ógn við fjármálastöðugleika.
Réttast væri að mati félaganna að seðlabankastjóri drægi orð sín til baka og beindi sjónum sínum þess í stað að þeim hættum sem Seðlabankinn sjálfur dregur fram í skýrslu sinni.
„Það er óboðlegur málflutningur af hálfu seðlabankastjóra að ábyrgðin á efnahagslegum stöðugleika hvíli á herðum launafólks þegar skýrslur sömu stofnunar benda í þveröfuga átt. Vinnandi fólk getur ekki endalaust verið höggdeyfir íslensks efnahagslífs.“
Fagfélögin segja launafólk þegar hafa þurft að fóta sig í mikilli verðbólgu, háum vöxtum og rýrnandi kaupmætti. Á sama tíma hafi hagur stórfyrirtækja vænkast, heilt á litið.
„Fólkið hefur þegar tekið skellinn.“