Íslenska ríkið er skaðabótaskylt gagnvart íslenskri konu vegna brota á EES-reglum. Það er niðurstaða Hæstaréttar Íslands að íslenska ríkið hafi bakað sér skaðabótaskyldu með því að hafa ekki innleitt með fullnægjandi hætti EES-reglur.
Konan bjó og starfaði um árabil í Danmörku en flutti til Íslands þegar hún var barnshafandi. Hún fékk aðeins greiddar lágmarksgreiðslur úr Fæðingarorlofssjóði þar sem sjóðurinn tók þá mið af tekjum á innlendum vinnumarkaði við útreikninga sína.
Konan fór fyrir dóm til að fá rétt sinn til fæðingarorlofsgreiðslna staðfestan. Þrátt fyrir að ákvæði í Evrópurétti eigi að tryggja að launafólk verði ekki verr sett með flutningi milli landa tapaði hún málinu fyrir Hæstarétti. Það var vegna þess að reglurnar voru ekki rétt innleiddar á sínum tíma.
Í málinu reyndi á það að íslensk lög um fæðingarorlof stönguðust á við Evrópureglur. Málið hefur verið nokkuð til umræðu í tengslum við svokallaða bókun 35, en því hefur verið haldið fram að niðurstaðan árið 2024 hefði verið á annan veg ef búið hefði verið að innleiða bókunina.
Konan fór þá í skaðabótamál við íslenska ríkið fyrir að innleiða reglurnar ekki rétt. Hún tapaði skaðabótamálinu í héraðsdómi en fékk að áfrýja því beint til Hæstaréttar, sem hefur dæmt íslenska ríkið til að greiða henni rúmar 2,7 milljónir í skaðabætur, auk dráttarvaxta.
Fréttin hefur verið uppfærð.