Seðlabankastjóri segir að íslenskir launþegar þurfi mögulega að taka á sig hækkun olíuverðs. Staðan í hagkerfinu bjóði ekki upp á annað.
Mikið umrót á alþjóðamörkuðum og vísbendingar um aukin vanskil í byggingariðnaði valda fjármálastöðugleikanefnd Seðlabankans einna helst áhyggjum, samkvæmt yfirlýsingu nefndarinnar í morgun.
Skýr merki um kólnandi hagkerfi
Nefndin segir að skýr merki séu um að hagkerfið sé að kólna. Atvinnuleysi er að aukast og nú einnig hjá íslenskum ríkisborgurum en í sumar var atvinnuleysi einkum bundið við erlenda ríkisborgara. Framboð íbúða hefur sjaldan verið meira og nýjar íbúðir seljast hægt, sem veldur byggingaverktökum vandræðum. Þar hefur borið á auknum vanskilum.
Ytra umhverfið er sömuleiðis óhagfellt. Ekki sér fyrir endann á olíukrísunni og verðið á dísilolíu er komið í hæstu hæðir.
Alþjóðleg verðbólga er þrálát, helstu seðlabankar heims hafa hækkað vexti og sífellt fleiri hafa áhyggjur af mögulegri dýfu á hlutabréfamörkuðum.
Spurnig hvernig þjóðin ætlar að spila úr stöðunni
Þrátt fyrir krefjandi stöðu er Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri bjartsýnn á að íslenska hagkerfið geti staðið af sér vindinn en það gæti þýtt að heimili landsins þurfi að færa fórnir.
Núna er bara spurning um það hvernig við ætlum að spila úr stöðunni, þá er ég að tala um sem þjóð. Laun hérna hafa hækkað mjög mikið, við erum komin með hæstu laun í Evrópu, ef launatengd gjöld eru tekin með. Kaupmáttur hefur vaxið mjög og á sama tíma eru blikur á lofti erlendis.
Þá held ég að það sé tími til þess, eins og á vinnumarkaði, því það er ekki hægt að fara fram á launahækkanir með sama hraða og áður. Mögulega er ekki hægt að bæta fólki hækkanir á olíuverði bara með því að hækka launin, tökum sem dæmi launin sem dæmi. Bara eins og núna. Mögulega er olíuverðið eitthvað sem við þurfum að taka á okkur.
Seðlabankinn hækkaði stýrivexti upp í átta prósent í vor og bindur Ásgeir vonir við að héðan í frá liggi leiðin niður á við. Það sé undir vinnumarkaðinum komið.
„Auðvitað vonum við að það sé komið nóg, að við þurfum ekki að gera meira og við séum að sjá verðbólgu hníga. En lykilatriðið í því er náttúrlega vinnumarkaðurinn, hvort vinnumarkaðurinn sé að vinna með þessu. Aðilar vinnumarkaðarins segjast vilja lægri vexti og við fögnum því. En þá þýðir það að við þurfum hemil á hækkun launa.“