Velferð, samtök stjórnenda í velferðarþjónustu sveitarfélaga á Íslandi, eru uggandi yfir því að ríkið ætli að skera niður framlög til sveitarfélaga vegna framkvæmdar laga um þjónustu í þágu farsældar barna.
Samtökin segja fjármagnið hafa verið grundvöll þess að byggja upp, manna og styrkja þjónustu í þágu barna og fjölskyldna þeirra. Þetta kemur fram í tilkynningu frá samtökunum.
Grófur forsendubrestur
Velferð gerir jafnframt alvarlegar athugasemdir við að svo umfangsmikil ákvörðun skuli tekin einhliða af hálfu ríkisins, án samráðs við sveitarfélög eða heildstæðs mats á stöðu málaflokksins.
Með lögum um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna, sem eru frá 2021, var sveitarfélögum falin ný og umfangsmikil verkefni, meðal annars lögfesting á hlutverkum tengiliða og málstjóra.
„Frá upphafi var viðurkennt að verkefninu fylgdi verulegur umframkostnaður fyrir sveitarfélög, sem ríkinu bar að mæta. Ákvæði um fjármögnunina voru sérstaklega fest í sessi í 13. gr. laga um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga, þar sem kveðið er á um framlög til að mæta umframkostnaði sveitarfélaga,“ segir í tilkynningunni.
Í lögskýringargögnum með lögunum kom fram að farmlögum skyldi ekki hætt sjálfkrafa við lok aðögunartímabils heldur að heildstætt endurmat á fjárþörf og ávinningi skyldi fara fram.
„Ákvörðun um niðurskurð án slíks mats felur í sér grófan forsendubrest. Þá gengur ákvörðunin þvert gegn niðurstöðum nýlegrar stjórnsýsluúttektar Ríkisendurskoðunar, sem benti sérstaklega á að innleiðingu farsældarlaganna væri ekki lokið og að frekari uppbygging þjónustukerfa væri nauðsynleg til að markmið laganna næðust.“
Samtökin segja þá fullyrðingu, um að sveitarfélögin hafi þegar náð fram þeim ávinningi sem lögin hafi átt að skilað, eða bolmagn til að bera kostnaðinn ein, ekki eiga sér stoð í raunveruleikanum.
Skora á stjórnvöld að tryggja að fjármagnið renni til sveitarfélaganna
Sveitarfélög standi frammi fyrir tvíþættu álagi. Annars vegar fjarfesta þau í uppbyggingu snemmtæks stuðnings á sama tíma og þörf er fyrir umfangsmikla og kosnaðarsama þjónustu fer vaxandi.
„Ávinningur snemmtækrar íhlutunar kemur fram til lengri tíma, en meðan á innleiðingu stendur sitja sveitarfélögin eftir með aukinn umframkostnað á öllum stigum.“
Fjármagnið frá ríkinu hafi verið nýtt til að skapa svigrúm fyrir tengliði í leik- og grunnskólum til að grípa börn snemma og tryggja að ekki verði rof á þjónustu við flutning milli skólastiga. Það hafi einnig verið nýtt við mönnun stöðugilda málstjóra, tengiliða og þverfaglegra teyma til að styðja við fjölskyldur.
„Verði framlagið fellt niður er hætt við að einhver sveitarfélög verði nauðbeygð til að fækka stöðugildum, sem augljóslega mun veikja getu þeirra til að uppfylla lögbundnar skyldur sínar.“
Samtökin skora á stjórnvöld að standa við upphafleg markmið farsældarlaganna og tryggja að fjármagnið, milljarður króna, renni óskertur til sveitarfélagnna, „börnum og fjölskyldum á Íslandi til aukinnar farsældar.“