Mitchell Whitfield lék Barry Farber tannlækni og fyrrverandi unnusta Rachel í Friends. Þrátt fyrir að Barry hafi aðeins komið við sögu í sex þáttum þá er hann ein mikilvægasta persónan í söguþræði þáttanna.Ef Rachel Green ( Jennifer Aniston ) hefði ekki ákveðið að yfirgefa Barry á brúðkaupsdegi þeirra og stefnt á Central Perk, hefði hún aldrei hitt fyrrverandi bestu vinkonu sína Monicu Geller ( Courteney Cox ) á ný, eða hafið samband við Ross Geller (David Schwimmer) eða verið meðlimur í þáttunum yfirhöfuð.
Manstu eftir Barry úr Friends? - Svona lítur hann út í dag