Quang Lé er frjáls ferða sinna eftir að hafa sætt rúmlega tveggja ára löngu farbanni. Þetta staðfestir Sveinn Andri Sveinsson verjandi hans. mbl greindi fyrst frá.
Sveinn Andri segir farbann yfir Lé hafa runnið út 1. september en ekki hafi verið farið fram á áframhaldandi farbann yfir honum. Lé er meðal annars grunaður um mansal, skjalafals og peningaþvætti.
Héraðsdómur Reykjavíkur hafði framlengt farbann yfir honum til 23. september í júlí en Landsréttur stytti það til 1. september. Sveinn Andri segir það hafa verið ákveðna vísbendingu um að eitthvað þyrfti að gerast í rannsókninni til þess að það yrði framlengt að nýju.
Sveinn segir Lé enn hér á landi 23 dögum eftir að farbanninu var aflétt, enda sé öll hans fjölskylda og líf hér.
„Sem sýnir bara hvað þetta var algjörlega ónauðsynlegt.“
Staðan sé að öðru leyti óbreytt. Eigur Lé séu til að mynda enn frystar. Sveinn bendir á að rannsóknin hafi fyrst átt að klárast síðasta sumar en síðan hafi verið tilkynnt að hún ætti að klárast núna í sumar. Hún sé aftur á móti enn í gangi í dag um tveimur og hálfu ári frá handtöku Lé. Hann hefur ekki verið ákærður.
Lögregla hefur borið fyrir sig að rannsókn málsins sé umfangsmikil og að þýða þurfi fjölmörg gögn, þar sem mikið af samskiptum sem kunni að varða málið séu á víetnömsku.