Loftslagsvísindamenn telja að meira en fjögur hundruð og fimmtíu þúsund manns deyi næsta hálfa árið vegna aukins hita sem veðurfyrirbærið El Niño veldur.
El Niño nú þegar farið að valda tjóni
El Niño er þegar farið að valda tjóni á stöðum eins og í Indónesíu og Suður-Ameríku og í gær lýsti ríkisstjóri Kaliforníu yfir neyðarástandi í ríkinu. Veðurfyrirbærið hófst í júní og verður ríkjandi þar til í lok febrúar á næsta ári.
Sérfræðingar segja El Niño verða sterkari en nokkru sinni og að loftslagsbreytingar af mannavöldum auki kraft þess enn frekar.
Loftslagsvísindamenn hjá Climate Impact Lab við háskólann í Chicago áætla að aukinn hiti vegna veðurfyrirbærisins geti dregið 451 þúsund manns til dauða á næstu sex mánuðum.
Vísindamennirnir áætluðu dauðsföllin eftir landsvæðum og því gefur það skýra vísbendingu um hvar sé hægt að grípa til ráðstafana til að bjarga mannslífum.
Til dæmis að gera betri veðurspár, útbúa neyðarskýli fyrir fólk með kælistöðvum og fjölga heilbrigðisstarfsfólki á heitustu tímunum.
Michael Greenstone, einn meðhöfunda skýrslunnar, segir 451 þúsund vera svo háa upphæð að fólk átti sig ekki á henni. „En inni í þessari tölu eru foreldrar og börn, afar og ömmur, nágrannar, vinnandi fólk með fjölskyldur sem lifir lífinu.“
Póstkort úr framtíðinni
Talið er að áhrifin næstu mánuði verði mest á Nígeríu, Indónesíu, Súdan, Indland og Brasilíu. Mikil áhrif verða einnig á lönd sunnan Sahara-eyðimerkurinnar og í suðaustur-Asíu.
Mat vísindamanna gildir frá september þar til í febrúar en búist er við auknum dauðsföllum vegna hita út júní eða júlí á næsta ári.
El Niño í ár er eins konar póstkort úr framtíðinni, að mati vísindamannanna. Hitastig í ár hækkar upp á það stig sem vísindamenn gera ráð fyrir að loftslagsbreytingar valdi eftir um það bið 20 ár.
Tamma Carleton, meðhöfundur skýrslunnar, segir að með því að efla neyðarviðbrögð og ráðast í markvissar aðgerðir sé hægt að bjarga mörgum mannslífum á þessu ári.
„En eftir 20 ár, þegar öfgakenndur hiti og veðurfar er orðið að eðlilegu ástandi viljum við ekki vera stöðugt í neyðarástandi. Við þurfum að hefjast handa strax við að þróa, innleiða og meta þær lausnir sem geta bjargað mannslífum á næstu árum.“