Efnaleki kom upp í fiskvinnslu á Óseyri á Akureyri í dag. Lögreglu barst tilkynning um lekann um tuttugu mínútur yfir fjögur. Í tilkynningu frá lögreglunni á Norðurlandi eystra kemur fram að lögregla og slökkvilið séu að vinna á vettvangi. Lögreglan biðlar til fólks um að halda sig fjarri Óseyri á meðan unnið er á vettvangi.
Efnaleki á Óseyri – fólk beðið um að halda sig fjarri