Masoud Pezeshkian, forseti Írans, segir ekki hægt að knýja Íran til uppgjafar með hótunum. Donald Trump Bandaríkjaforseti hótaði að gereyða Íran í ræðu sinni í gær.
Pezeshkian svaraði Trump fullum hálsi í ræðustól á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í New York fyrr í dag.
„Bandaríkjaforseti lýsti okkur sem hryðjuverkamönnum en það erum við sem höfum orðið fyrir barðinu á hryðjuverkum,“ sagði Pezeskhian og sýndi ljósmyndir af hinum fallna æðsta klerki Ali Khameini og börnum sem voru drepin í árás á Minab-stúlknaskólann í lok febrúar.
Beygi sig ekki fyrir hótunum
Fulltrúi Bandaríkjanna gekk út úr salnum á meðan. Pezeshkian segir Írani tilbúna til viðræðna um frið en ekki ef hótunum sé beitt.
Hann segir ekki hægt að knýja Íran til uppgjafar með valdi, mótstaðan eigi aðeins eftir að aukast við ofríki og hótanir.
Mannréttindasérfræðingar á vegum Sameinuðu þjóðanna komust að því í síðustu viku að rökstuddur grunur væri um að Bandaríkjaher hefði framið stríðsglæpi í stríðinu í Íran með tveimur árásum sínum þar sem 177 almennir borgarar voru drepnir.