Það eru listakonurnar í Kirsuberjatréinu á Vesturgötu sem greina frá því að leikarinn hafi sótt þær heim í dag. Hann kíkti við í listabúðinni í hádeginu og sat fyrir á mynd með einni af listakonunum Dísu Jóhannsdóttur.
Domingo fer með stórt hlutverk í Four Seasons á Netflix ásamt Tinu Fey og fleiri valinkunnum leikurum. Þættirnir fjalla um miðaldra vini sem fara reglulega í frí saman þvert á árstíðir.
Domingo er líklega þekktastur fyrir hlutverk sitt sem Ali Muhammad í sjónvarpsþáttunum Euphoria frá HBO sem skörtuðu Zendaya, Jacob Elordi og Sydney Sweeney í aðalhlutverkum. Hann skaust upp á stjörnuhimininn árið 2015 í hlutverki Victor Strand í uppvakingaþáttunum Fear the Walking Dead.
Domingo var nýverið í viðtali við bandarísku sjónvarpsstöðina CNN. Þar sagði hann frá því að hann hafi átt erfitt uppdráttar snemma á ferlinum, en hafi þó aldrei gefist upp.