Tveimur starfsmönnum í heilbrigðisráðuneytinu hefur verið sagt upp störfum. Báðir starfsmennirnir gegna stöðu sérfræðings í ráðuneytinu. Þetta staðfestir Margrét Erlendsdóttir upplýsingafulltrúi ráðuneytisins.
Hún segir að greint hafi verið frá uppsögnunum á starfsmannafundi í dag. Starfsmönnunum hafi verið sagt upp til þess að mæta aðhaldskröfu ríkisstjórnarinnar, sem hefur áhrif á stofnanir ríkisins þar á meðal ráðuneytin.