Bændur í Fljótum og Hörgárdal fara nýstárlegar leiðir við smalamennsku. Ekki aðeins hundar og hestar aðstoða við göngur heldur er farið að nota bæði þyrlur og dróna.
Rétt fyrir ofan félagsheimilið Mela í Hörgárdal er skýli sem hefur að geyma ríflega 60 ára gamla þýska herþyrlu. Þyrlan er enn í fullri notkun og kemur til góða við haustverkin í sveitinni.
„Þetta vekur mikla lukku. Þetta sparar bæði gríðarlegan tíma og mannskap. Að geta skannað svæðið þegar maður flýgur fram dali þá sjá þeir skepnurnar og annað slíkt,“ segir Kristján Birkir Jónsson.
Tæp tvö ár eru síðan að Kristján eignaðist þyrluna. Þyrlan sinnti áður ýmsum verkefnum fyrir þýska herinn í Ölpunum - setti meðal annars hæðarmet árið 1970 þegar hún fór í 40.000 feta hæð, og stóð það met lengi. Kristján flýgur þó ekki það hátt með gangnafólk, sem er hæstánægt með framtakið og segir það flýta fyrir í göngum og við eftirleitir.