Bæjarstjórn Hveragerðis hefur sammælst um að skera töluvert niður í fjárfestingum þessa árs. Er þá aðallega skorið niður í framkvæmdum sem átti að ráðast í samkvæmt fjárhagsáætlun. Kemur þessi ákvörðun í kjölfar skýrslu þar sem dregin var upp verulega dökk mynd af fjárhag bæjarins. Bæjarstjórn samþykkti einnig að uppfæra rekstraráætlun þessa árs og næstu ára með tilliti til versnandi útlits í fjármálum bæjarins. Fjárhagsáætlun ársins gerði ráð fyrir að samstæðan, bæjarsjóður og félög bæjarins, yrðu rekin með 500 milljóna króna afgangi en nú er gert ráð fyrir halla upp á 317,8 milljónir.
Skorið verulega niður í framkvæmdum hjá Hveragerðisbæ eftir skýrsluna kolsvörtu - Áætluð rekstrarniðurstaða versnar um nærri milljarð