Hollenska ríkisútvarpið NPO hefur tilkynnt að Holland taki þátt í Eurovision í Búlgaríu árið 2027. Sjónvarpsstöðin AVROTROS, sem heyrir undir NPO og hefur séð um keppnina undanfarin ár, hafði þegar tilkynnt að hún hygðist ekki senda framlag í keppnina. Lokaákvörðunin lægi þó hjá NPO.
Keppnin verður haldin í borginni Burgas í Búlgaríu dagana 12. til 15. maí á næsta ári. Holland var eitt þeirra landa sem tóku ekki þátt í keppninni í Austurríki í ár ásamt Íslandi, Spáni, Írlandi, og Slóveníu.
Vilja að keppnin verði sameinandi afl á ný
Jet de Ranitz, stjórnarformaður NPO, segist skilja að þátttakan kunni að vekja blendnar tilfinningar meðal Hollendinga.
Samtök evrópskra sjónvarpsstöðva, EBU, hafi gert mikilvægar breytingar á fyrirkomulagi keppninnar til að reyna að koma til móts við gagnrýni. NPO hafi sérstaklega beðið EBU um að leggja aftur áherslu á sameinandi afl keppninnar, sem upphaflegur tilgangur hennar hafi verið. NPO vilji taka þátt í því með þátttöku sinni.
Meðal nýrra reglna EBU um Eurovision er sú regla að lönd geti ekki haldið keppnina ef stríðsátök standa yfir í landinu eða ef lönd eru í „viðkvæmri heimspólitískri stöðu“.
Írland tekur ekki þátt og líklega ekki Spánn heldur
Írska ríkisútvarpið RTE hefur þegar tilkynnt að það hyggist ekki taka þátt á næsta ári fái Ísrael áfram að taka þátt. Þá muni það heldur ekki sýna útsendingu frá keppninni á stöð sinni.
RTÉ sagði að þrátt fyrir úrbætur EBU væri afstaða stöðvarinnar til þátttöku í keppninni óbreytt vegna áframhaldandi mannfalls og mannúðarkrísu á Gaza í kjölfar stríðsreksturs Ísraels.
Forstjóri ríkisútvarpsins á Spáni, RVTE, hefur einnig lagt til að stöðin sniðgangi keppnina á ný og kallaði viðvarandi þátttöku Ísrael „verulega sársaukafulla“ í ljósi ástandsins á Gaza. Ákvörðun RVTE hefur ekki verið gerð opinber en stjórnin mun næst funda í október.
Ákvörðun um hvort RÚV sniðgangi keppnina aftur liggur ekki fyrir.