Alma Möller heilbrigðisráðherra segir þá stöðu sem uppi sé innan SÁÁ vonbrigði, traust á stjórn SÁÁ hafi beðið hnekki.
„Það er ekkert útilokað fyrir stjórnina að snúa þessari þróun við og nái tökum á stöðunni.“
Deilurnar innan SÁÁ hafa verið hatrammar og að mörgu leyti illskiljanlegar. Stjórn félagsins er sökuð um að hafa reynt að hafa áhrif á faglega heilbrigðisþjónustu, forstjórinn, yfirlæknir og fleiri lykilstarfsmenn hafa horfið frá störfum. Stjórnin situr samt sem fastast og hefur ráðið nýja yfirmenn en áfram ganga skeyti á milli þess fólks sem telur sig málið varða.
Hafa nokkrar vikur til að koma meðferðarstarfseminni í eðlilegt horf
Alma segir stjórnina hafa nokkrar vikur til þess að koma meðferðarstarfseminni í eðlilegt horf, allir sem komið hafi að málinu séu allir af vilja gerðir til að veita aðstoð
„Við sem höfum verið að koma að þessum málum, ég sem heilbrigðisráðherra, landlæknir og forstjóri Sjúkratrygginga, erum öll af vilja gerð til að aðstoða stjórnina.“
Landlæknisembættið sinnir daglegu eftirliti með mönnun á Vogi en heilbrigðisráðuneytið hefur ekki heimild til þess að stíga inn í starfsemina vegna þess að hún er ekki ríkisrekin. Landlæknir hefur þó heimild til þess að gefa stofnuninni tilmæli.
„Ef ekki er brugðist nægilega vel við því þá ráðleggur landlæknir ráðherra og þá getur jafnvel komið til þess að stöðva starfsemi að hluta og tímabundið eða að fullu.“
Ekki hægt að panta traust
Alma segir SÁÁ hafa svigrúm til þess að styrkja stöðu sína og koma starfseminni í rétt horf, en það svigrúm sé sem fyrr segir nokkrar vikur.
„Við þurfum að skapa traust, það gerir stjórnin með því að uppfylla samninginn og koma þjónustunni í gang.“
En traust er dýrkeypt og Alma segir ljóst að aðeins skjólstæðingar og starfsmenn geti skapað það.
„Að auki tekur auðvitað tíma að byggja upp traust í heilbrigðisþjónustu, það byggir á því að starfið sé faglegt, stöðugt og öruggt en það er ekki hægt að panta traust.“