Komin er nokkuð skýr mynd af því hvað olli efnaleka í fiskvinnslu á Óseyri á Akureyri í dag. Klórgas myndaðist þegar stíflueyðir blandaðist við annað þrifaefni. Þetta segir Maron Berg Pétursson, varaslökkviliðsstjóri hjá slökkviliðinu á Akureyri.
Fjórir voru fluttir á sjúkrahús til aðhlynningar eftir að hafa fundið fyrir einkennum í öndunarfærum.
Það voru mannleg mistök sem orsökuðu lekann en starfsmenn höfðu fyrr um daginn hellt stíflueyði í niðurfall í von um að losa um teppu. Þrifhópur kom svo síðdegis og ætlaði að hefja þrif en þegar þrifaefninu var hellt á gólfin kom strax í ljós að ekki var allt með felldu. Slökkviliðinu barst tilkynning um mengunina rúmlega fjögur í dag og lauk vinnu á vettvangi á áttunda tímanum í kvöld. Maron segir mildi að ekki hafi farið verr.
Slökkviliðið notaðist við klórgasmæla og þegar vinnu lauk mældist ekkert klórgas í loftinu lengur. Margeir Björgvinsson, varðstjóri hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra, segir aðgerðir hafa gengið vel. Ekki hefur náðst að ræða við alla á vettvangi en Margeir á von á að lögreglan fari í þá vinnu á morgun.