Hjartað er hér segir Gísli Grétar Sigurðsson Grindvíkingur sem fagnar endurreisnarumræðu stjórnvalda. Hann vonast að sem flestir snúi til baka og finni sig aftur í bænum.
Gísli hefur búið í Grindavík alla sína tíð og var einn þeirra síðustu til að selja fasteignafélaginu Þórkötlu húsið sitt.
„Hér er bara hjartað. Það er í Grindavík.“
Í endurskoðuðu hættumati sem kynnt var á íbúafundi í gær eru aðstæður í bænum taldar sambærilegar við aðra bæi sem búa við langvarandi náttúruvá. Því er hægt að taka næstu skref við endurreisn Grindavíkur, að mati stjórnvalda, meðal annars með því að hefja undirbúning á að bjóða Grindvíkingum að kaupa aftur íbúðarhúsnæði í bænum ef þeir vilja.
„Það er bara gleðilegt og tímabært,“ segir Gísli.