Íslensk stjórnvöld lækkuðu í vor virðisaukaskatt á eldsneyti vegna hækkandi heimsmarkaðsverðs og lækkaði lítrinn af bensíni og dísil um 26 til 32 krónur. Sú hækkun gekk til baka þegar aðgerðin rann út um mánaðamót. Frekari aðgerða er ekki að vænta segir Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra.
„Við reiknuðum auðvitað með því að olíuverð myndi hækka miklu meira en það gerði. Síðan er það þannig að kaupmáttur íslenskra heimila hefur vaxið mjög mikið á undanförnum árum.“
Daði segir að vegna kaupmáttarins hitti þetta ekki íslenskan almenning fyrir með sama hætti og í mörgum Evrópuríkjum þar sem laun hafa nánast staðið í stað síðan fyrir covid.
„Þannig að við getum sagt að þetta er erfitt fyrir íslensk heimili og ég sýni því fullan skilning en þetta er ekki næstum jafn erfitt fyrir íslensk heimili eins og heimili þeirra ríkja sem eru að bregðast við núna af því að kaupmáttur óx svo hratt hjá okkur.“
Seðlabankastjóri tekur undir þessi orð og segir laun á Íslandi, að teknu tilliti til launatengdra gjalda, orðin þau hæstu í Evrópu. Þau hafi hækkað mikið síðustu ár, staða heimila og fyrirtækja sé almennt góð og þjóðin þurfi að spyrja sig hvernig eigi að spila úr þeirri stöðu.
„Þá held ég að það sé tími til þess, eins og á vinnumarkaði, því það er ekki hægt að fara fram á launahækkanir á sama hraða og áður. Mögulega er ekki hægt að bæta fólki hækkanir á olíuverði bara með því að hækka launin sem dæmi. Bara eins og núna. Mögulega er olíuverðið eitthvað sem við þurfum að taka á okkur.“