Karl Bretakonungur ætlar að birta skattaskýrslu sína á fimmtudaginn. Karl verður fyrsti konungborni þjóðhöfðinginn í Bretlandi til að birta skattaskýrslu sína. Breska konungshöllin tilkynnti um þessa ákvörðun hans í gær.
Heimildir breska ríkisútvarpsins herma að það hafi verið persónuleg ákvörðun hans að gera skattaskýrslu sína opinbera. Þetta er sagt liður í því að auka gagnsæi.
Fjármál konungshallarinnar og konungsfjölskyldunnar hafa verið gagnrýnd, sérstaklega eftir að fjármál Andrew Mountbatten-Windsor, fyrrum Bretaprins, komust í kastljós fjölmiðla. Hann áframleigði húsnæði þrátt fyrir að greiða sjálfur smáaura fyrir höfðingasetur í rúma tvo áratugi.
Samkvæmt breskum lögum þurfa konungbornir þjóðhöfðingjar ekki að greiða tekjuskatt, fjármagnstekjuskatt eða erfðaskatt. Þrátt fyrir það hefur breska konungsfjölskyldan greitt tekjuskatt og fjármagnstekjuskatt sjálfviljug frá árinu 1993. Það fyrirkomulag var tekið upp í valdatíð Elísabetar Englandsdrottningar.