JD Vance varaforseti Bandaríkjanna er kominn til Sviss til að hefja viðræður við Írana. Samninganefndir frá Bandaríkjunum og Íran ræða saman um framkvæmd samkomulags sem viljayfirlýsingin um að binda enda á stríðið í Mið-Austurlöndum byggir á.
Kjarnorkumál Írana og vopnahlé í Líbanon verða meðal þess sem samninganefndirnar ætla að ræða á fundi sínum í Sviss. Samninganefnd Írana kom til landsins í gærkvöld.
Sérlegur erindreki Bandaríkjanna Steve Witkoff og Jared Kushner tengdasonur Bandaríkjaforseta eru einnig staddir í Sviss til að taka þátt í viðræðunum fyrir hönd Bandaríkjastjórnar.
Íranar sögðu í gær að þeir hefðu lokað Hormússundi vegna áframhaldandi árása Ísraela á suðurhluta Líbanon. Stjórn Íranshers segir árásirnar vera brot á friðarsamkomulagi við Bandaríkin.
Bandaríkjaher segir Hormússund ekki vera lokað og skipaumferð sé um sundið. JD Vance varaforseti Bandaríkjanna sagði í viðtali við Fox News í gær að hann sæi engin merki um að sundið væri lokað.