Dr. Ragnhildur Helgadóttir rektor flutti ávarp og talaði um sannleikann og mikilvægi þess að nýta menntunina til að greina á milli sannleika og viðurkenndrar vísindalegrar þekkingar annars vegar og hins vegar skoðana og trúaratriða.
Athöfn tæknisviðs fór fram fyrir hádegi og samfélagssviðs eftir hádegi. Af tæknisviði útskrifuðust 373 nemendur og af samfélagssviði 348 nemendur. Viðskiptaráð veitti viðurkenningar fyrir framúrskarandi námsárangur. HR hefur um árabil státað af sterkum tengslum sínum við íslenskt atvinnulíf.
Alls luku fjórir nemendur doktorsnámi, tveir úr tölvunarfræðideild og tveir úr verkfræðideild. Meistaranámi luku hundrað og sextíu nemendur.
Um tónlistarflutning sá listafólkið Sigríður Thorlacius og Guðmundur Óskar Guðmundsson. Auk rektors héldu bæði nemendur og sviðsforsetar ræður.