Alvarlegt umferðarslys varð rétt austan við Vík í Mýrdal rétt í þessu.
Lögregla og sjúkraflutningamenn eru á vettvangi.
Magnús Ragnarsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi, greinir frá þessu í samtali við mbl.is.
Hann kvaðst ekki geta tjáð sig nánar um málavexti að svo stöddu.
Uppfært kl. 16.58:
Um tveggja ökutækja árekstur er að ræða. Þjóðvegurinn er opinn en lögregla stýrir umferð á svæðinu. Því má búast við töfum.
Þetta staðfestir Einar Sigurjónsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi, við mbl.is.