„Þetta hefur verið heilmikil áskorun og mikil umferð,“ viðurkennir Árni. „En þetta rúllar allt og það eru allir að gera sitt besta.“
Búist var við tuttugu þúsund gestum á Þingvelli í dag.
„Það er gríðarlegur fjöldi kominn á svæðið og við erum sáttir.“
Lögreglan beitti því bragði að fylgja rútum sem stefndu á svæðið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina.
„Það er nú bara þannig að þeir sem tóku rúturnar komust fyrr inn á svæðið en þeir sem komu á einkabílum.“
Umferðin er nú farin að róast og býst Árni við að næstu klukkutímar verði rólegri.
„Tónleikasvæðið er flott og það eru allir að njóta. Það er enginn að fara héðan næstu tvo tímana.“