Allt að tuttugu þúsund manns verða á tónlistar- og fjölskylduhátíðarinnar BERGMÁL - KALEO og vinir á Þingvöllum. Stuðið byrjaði kl. 14:30 þegar Kaleo stigu á svið með órafmagnaða tónleika, þar á eftir komu Stuðmenn, GDRN og Mugison. Núna er Helgi Björns að spila, á eftir honum koma Hjálmar og Emiliana Torrini. 21:00 stíga svo Kaleo á svið. Hægt er að horfa á beina útsendingu frá tónleikunum á Sjónvarpi Símans. Veðrið er frábært og engin þörf á regnhlífum eins og sumir óttuðust.
Mörg þúsund manns á Þingvöllum: „Varla hægt að hreyfa sig“