Lögreglan á Norðurlandi vestra varar við aukinni hættu á skriðum og grjóthruni, meðal annars í Almenningum, vegna mikillar úrkomu síðustu daga.
Þetta kemur fram í tilkynningu á Facebook-síðu
Á Siglufirði hafa mælst 103 mm úrkomu á síðustu 48 klukkustundum og búist er við áframhaldandi rigningu fram á kvöld, segir í tilkynningunni.
Jarðvegur er víða orðinn mjög mettaður og því geta orðið jarðvegsskriður, aurskriður og grjóthrun í bröttum hlíðum.
Lögreglan biðlar til fólks að sýna aðgát og dvelja ekki undir giljum og bröttum hlíðum að óþörfu. Jafnframt að vera vakandi fyrir breytingum í umhverfinu.