Bandaríkjastjórn ætlar að hætta að fjármagna verkefni í Suður-Afríku sem beita sér gegn útbreiðslu HIV og alnæmis. Samskipti milli Bandaríkjanna og Suður-Afríku hafa verið stirð eftir að Donald Trump var endurkjörinn.
Samkvæmt breska ríkisútvarpinu eru yfir átta milljónir íbúa í Suður-Afríku með HIV, sem er það land í heiminum sem er með mestan fjölda smitaðra. Talið er að framlög Bandaríkjastjórnar hafi numið allt að 400 milljónum dollara á ári, allt fram á síðasta ár. Það eru um 20% allra framlaga til verkefna gegn HIV og alnæmi í Suður-Afríku.
Fjárframlögum Bandaríkjanna í verkefnin var frestað í október. Bandaríkjastjórn hefur nú staðfest að dregið verði úr þeim og stjórnvöld í Suður-Afríku eigi að geta fjármagnað verkefnin.
Hefur gagnrýnt stjórnvöld í Suður-Afríku fyrir aðgerðaleysi gagnvart hvítum landeigendum
Eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti var endurkjörinn virðist sem samskipti milli landanna hafi verið stirð. Forsetinn hefur gagnrýnt stjórnvöld í Suður-Afríku fyrir aðgerðaleysi þeirra vegna ofbeldis sem hann segir að hvítir landeigendur í Suður-Afríku hafi orðið fyrir. Forsetinn segir hvítt þjóðarmorð vera í Suður-Afríku en sú fullyrðing hans hefur verið dregin í efa.
Bandaríkjastjórn hefur veitt afkomendum hvítra manna í Suður-Afríku leyfi til að koma sem flóttamenn til Bandaríkjanna. Þeir eru nær einu flóttamennirnir sem fá að koma til Bandaríkjanna um þessar mundir.
Stjórnvöld í Suður-Afríku neita því að stefna stjórnvalda hafi kynt undir ofbeldi gegn hvítum landeigendum og dregið úr jöfnuði í landinu. Stjórnvöld segja að efnahagsleg valdefling svartra íbúa landsins sé nauðsynleg til að leiðrétta efnahagslegan ójöfnuð sem rekja megi allt aftur til aðskilnaðarstefnunnar.