Söngkonan GDRN, Guðrún Ýr Eyjólfsdóttir, steig á svið klukkan 16.
Magnús Jóhann lék undir með GDRN. Þau hafa unnið töluvert saman í gegnum tíðina og gefið út hljómplöturnar Tíu íslensk sönglög og Nokkur jólalög.
Ragnar Visage ljósmyndari RÚV fangaði nýverið myndir af hátíðinni úr lofti með dróna. Hér koma nokkrar þeirra!
Hér koma nokkrar myndir af viðbragðsaðilum á Þingvöllum.
Lögreglan á Suðurlandi er með mikinn viðbúnað í kringum tónleikana en ætla má að um 100 lögreglumenn komi að henni.
Það vakti athygli þegar greint var frá því fyrr í vikunni að bannað væri að taka regnhlífar og tjaldstjóla á Bergmál. Veður á Þingvöllum í dag er með ágætum og því verður að teljast hæpið að tónleikagestir sakni regnhlífarinnar.
En hvers vegna er bannað að koma með slíka muni á tónleikana? Fréttastofa náði tali af lögreglu sem sagði það vera af öryggisástæðum.
Það var vitanlega mikið stuð á Þingvöllum þegar Stuðmenn stigu á svið með alþjóðlegum kór fyrir skömmu.
Fréttastofa náði tali af 17 ára piltunum Bjarna Ásberg Þorkelssyni og Lúkasi Viktorssyni á hátíðinni. Þeir eru hluti af stærri hópi sem allir eru klæddir í þema.
„Þegar við fórum að sækja miðana okkar í 66° Norður hittum við á hann Jökul, vin okkar í Kaleo, og spurðum hann um þemað. Það var auðvitað lopapeysur,“ segir Bjarni Ásberg.
„Maður hlýðir Jökli.“
Lögreglan fylgist náið með gangi mála, bæði á hátíðarsvæðinu en umferðareftirlit er einnig umfangsmikið.
Árni Friðleifsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá umferðardeild lögreglunnar, var við Hakið þegar rætt var við hann í síðdegisfréttum. Hann segir að umferð gangi hægt en allir komist leiðar sinnar að lokum. Hann segir að búist hafi verið við því að gestir mættu seinna á svæðið. Strax klukkan 13 hafi umferð farið að þyngjast.
Árni biður gesti að hlýða fyrirmælum lögreglu og þá sem eiga pláss í bílastæði að hafa bílastæðamiða sjáanlega í rúðum.
Hér koma fleiri myndir frá Þingvöllum. Á þeim má meðal annars sjá tónleikagesti rölta yfir á tónleikasvæðið og hjónin Sögu Garðarsdóttur og Snorra Helgason á sviði.
Enn er laust á bílastæðinu við Leirur fyrir þá sem eru að koma að austan, að sögn lögreglunnar á Suðurlandi. Einnig er laust á bílastæðinu við Brúsastaði. Önnur bílastæði eru full.
Lokanir á Þingvallavegi tóku gildi klukkan þrjú, þær eru við Grafningsafeggjara vestan við Þingvallavatn, við Uxarhryggjarveg við norðurenda vatnsins og við Miðfell austan við Þingvallavatn. Vegurinn verður lokaður öllum nema þeim sem eiga miða á tónleikana. Takmarkanirnar munu hafa áhrif á umferð, sér í lagi um Mosfellsheiði.
Klukkan 14 í dag var röð í öryggisleit á Þingvöllum ekkert sérstaklega löng og gekk hratt. Eva Björk Benediktsdóttir fréttamaður er á svæðinu. Hún náði tali af öryggisverði sem segir öryggisgæslu hafa gengið mjög vel. Viðbúið sé að röðin eigi eftir að lengjast með deginum og líklegt að hún nái hámarki um 16.
Sumarsólstöður eru lengsti dagur ársins í þeim skilningi að þá er sólin lengst á lofti. Orðið sólstöður vísar til þess að sólin stendur kyrr, hún hættir að hækka eða lækka á lofti.
Sólarupprás á Þingvöllum í dag var klukkan 02:48 og sólarlag verður ekki fyrr en 5 mínútum eftir miðnætti, aðeins örfáum mínútum eftir að tónleikahaldi lýkur.
Lengsti dagur ársins er hins vegar á morgun, 21. júní, á formlegum sumarsólstöðum.
Jól eru kristin hátíð. Hátíðahöld hafa þó verið í norðurhluta Evrópu á vetrarsólstöðum síðan fyrir tíma kristnitöku. Vetrarsólstöður eru um svipað leyti og jóladagur, 21. desember á ári hverju.
Árstíðir á norðurhveli og suðurhveli eru gagnstæðar. Þetta þýðir að á suðurhveli jarðar eru nú vetrarsólstöður.
Gleðilega sólstöðuhátíð!
Hér koma myndir af fyrri tónleikum Kaleo í dag. Þeir hétu Kaleo acoustic og voru með öðruvísi sniði en seinni tónleikar hljómsveitarinnar sem verða klukkan 21-22:30.
Hljómsveitin samanstendur af Jökli Júlíussyni, Davíð Antonssyni, Daníel Kristjánssyni, Þorleifi Gauki Davíðssyni og Rubin Pollock.
Halla Tómasdóttir forseti Íslands ávarpaði hátíðargesti á Þingvöllum.
Egill Tómasson svæðisstjóri var í óðaönn að stýra undirbúningi þegar fréttamaður náði tali af honum í hádeginu. Um þúsund manns eru við störf á hátíðinni, auk nærri 100 lögreglumanna.
„Það er kominn her af fólki að fara í allar stöður, öryggisgæsla og fleira og allir starfsmenn í tæknideildum, matarvagnar, barstaff og annað. Það er mikið „action“ núna, verið að leggja lokahönd á síðustu „díteilin“, þetta lítur mjög vel út,“ segir Egill.
„Það er náttúrulega sól og blíða þannig að fólk þarf ekkert að koma með regnhlífarnar sínar og fólk getur setið í grasinu. Það er dásamleg stemning hérna.“
Tónleikagestir eru farnir að streyma á Þingvelli. Lögreglan á Suðurlandi segir að umferðin sé þétt og gangi rólega en örugglega. Hún hvetur gesti til að sýna þolinmæði og tilitssemi í umferðinni.
Ragnar Visage ljósmyndari RÚV er á Þingvöllum. Hér koma nokkrar myndir frá tónleikasvæðinu.
Kaleo stigu á svið á stóra sviðinu, Dynbergi, rétt í þessu.
Tónleikarnir á Dynbergi eru í beinni útsendingu á Bylgjunni og á vef Vísis. Þá er hægt að horfa á tónleikana í Sjónvarpi Símans í opinni dagskrá.
Dagskráin á stóra sviðinu er svona:
- 14:00- 14:20 - Opnunarathõfn
- 14:30 - 15:00 - Kaleo acoustic
- 15:10 - 15:40 - Stuðmenn
- 16:00 - 16:30 - GDRN
- 16:45 - 17:15 - Mugison
- 17:30 - 18:15 - Helgi Björns
- 18:30 - 19:15 - Hjálmar
- 19:30 - 20:30 - Emiliana Torrini
- 21:00 - 22:30 - Kaleo
- 22:40 - 23:15 - KK
- 23:30 24:00 - Júníus Meyvant
Góðan daginn.
Tónlistarhátíðin Bergmál er haldin á Þingvöllum í dag. Hljómsveitin Kaleo er meðal þeirra sem standa að baki tónleikunum. Hún stígur á svið í fyrra skiptið á hátíðinni klukkan 14:30. Að auki við hana koma fram hljómsveitir og tónlistarfólk á borð við KK, GDRN, Júníus Meyvant, Mugison, Helgi Björns og Emiliana Torrini – svo einhver séu nefnd.
Töluverður viðbúnaður er vegna hátíðarinnar en unnið hefur verið að skipulagi hennar í dágóðan tíma. Von er á um 20 þúsund tónleikagestum á Þingvelli í dag. Bergmál er sólstöðuhátíð enda dagurinn lengstur á Íslandi yfir þessa helgi. Sumarsólstöður eru á morgun, 21. júní.
Ég heiti Guðmundur Atli Hlynsson og flyt fregnir af Þingvöllum í dag.