Landhelgisgæslan hefur gert athugasemd við áform um að breyta tveimur fjölbýlishúsum á Ásbrú í Reykjanesbæ í hjúkrunarheimili. Bendir varnarmálasvið Gæslunnar á að húsin séu um 650 metra frá þeim hluta Keflavíkurflugvallar sem ætlaður er undir flug herflugvéla. Vill gæslan meina að ekki sé tekið nægilega mikið mið af þessu í skipulagstillögu vegna áformanna og þar af leiðandi skorti fullnægjandi útreikninga á hljóðvist í húsnæðinu vegna nálægðarinnar við flugvöllinn og tilheyrandi hávaða sem fylgi honum.
Landhelgisgæslan með viðvörun vegna nýs hjúkrunarheimilis