Einhverjar hræringar og breytingar virðast vera að eiga sér stað innan Vinstri hreyfingarinnar-Græns framboðs þegar kemur að afstöðu flokksins til inngöngu Íslands í Evrópusambandið. Samkvæmt könnunum ætlar mikill meirihluti stuðningsmanna flokksins að segja já við því, í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst, að halda áfram aðildarviðræðum Íslands og ESB. Formaður flokksins ætlar að segja já í atkvæðagreiðslunni og mun ekki mælast til þess að flokksmenn greiði atkvæði í samræmi við yfirlýsta stefnu flokksins sem er að Ísland eigi ekki að ganga í ESB.
Er VG að snúast í afstöðunni til ESB? - Formaðurinn segir já 29. ágúst en áhrifamiklir flokksmenn ósammála