Karlmaður var fluttur á slysadeild eftir alvarlega líkamsárás í heimahúsi í Kópavogi í dag.Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Þar segir að tilkynnt hafi verið um árásina um klukkan þrjú í dag. Einn hafi verið handtekinn, en rannsókn málsins sé á algjöru frumstigi.Ekki sé unnt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu.
Alvarleg líkamsárás í Kópavogi