Langvarandi áreiti getur valdið skaða
Margrét Grímsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar á Heilsustofnun NLFÍ, og Sigrún Sigurðardóttir, prófessor við HA, hafa verið með námskeið þar sem þær kenna konum aðferðir til þess að takast á við streitu og afleiðingar áfalla.
Margrét Grímsdóttir og Sigrún Sigurðardóttir byrjuðu að vinna saman þegar Margrét ákvað að fara í meistaranám við HA til að uppfæra sérhæfingu sína, sem er kulnun, örmögnun og langvinn streita.
„Ég tók áfanga hjá Sigrúnu en á sama tíma vorum við farnar að vinna aðeins saman á Heilsustofnun í Hveragerði. Þá kom upp sú hugmynd að lokaverkefnið mitt í náminu yrði námskeið.“ Hún hófst handa við að setja saman námskeið, kynnti það sem lokaverkefni og þær ákváðu að fara af stað með það saman.
„Við vinnum með taugakerfið á þessum námskeiðum og hugsum það fyrir fólk sem er í langvinnri sjúklegri streitu, kulnun eða örmögnun, eða hefur orðið fyrir áföllum af einhverju tagi, til dæmis vegna missis ástvinar eða ofbeldis.
Þegar við fórum af stað með námskeiðið fyrir rúmu ári ákváðum að auglýsa það á hádegi á föstudegi og á hádegi á mánudegi var námskeiðið fullbókað og kominn biðlisti. Við …