Í umtöluðu viðtali í þættinum Spjallið með Frosta Logasyni á efnisveitunni Brotkast gagnrýndi Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands, mjög fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um að taka upp að nýju aðildarviðræður Íslands og Evrópusambandsins. Meðal þess sem Ólafur Ragnar gagnrýndi var að nauðsyn atkvæðagreiðslunnar hefði, af utanríkisráðherra og forsætisráðherra, verið rökstudd meðal annars með vísan til ásælni Donald Trump Bandaríkjaforseta í yfirráð yfir Grænlandi.
Tímalína yfir Trump, Grænland og atkvæðagreiðsluna 29. ágúst - Einfaldaði Ólafur Ragnar atburðarásina?