Þegar Davíð hafði af­skipti af hjóna­bandi Ólafs og Dorritar - Vísir

Þegar Davíð hafði af­skipti af hjóna­bandi Ólafs og Dorritar - Vísir

Þegar Davíð hafði af­skipti af hjóna­bandi Ólafs og Dorritar - Vísir

Vísir greindi frá því á miðvikudaginn að Ólafur Ragnar og Dorrit Moussaieff væru að ganga í gegnum skilnaðarferli eftir rúmlega 23 ára hjónaband. Fréttirnar vöktu skiljanlega mikla athygli enda mikið farið fyrir hjónunum í gegnum tíðina og Íslendingar fylgst með sambandi þeirra frá upphafi.

Í kjölfarið var það rifjað upp á samfélagsmiðlum þegar sagnfræðingurinn Guðjón Friðriksson gaf út bókina Saga af forseta um forsetatíð Ólafs Ragnars haustið 2008 en þar kom fram að Davíð Oddsson hefði fimm árum fyrr gert athugasemdir við hjónabandið og efast um að ráðahagurinn væri löglegur.

Davíð sendi Ólafi bréf 31. júlí 2003, tíu vikum eftir hjónavígsluna, um að það væri „óskiljanlegt og óverjandi með öllu að ekki hafi verið bætt úr þeim ágöllum sem á vígslunni voru“ og að málið væri „allt hið vandræðalegasta og óheppilegt hvernig til þess var stofnað“.

Fundur með sýsla, pressa frá Hagstofunni og dvalarleyfi Dorritar

Bókin Saga af forseta kom út í nóvember 2008 og vakti þar ýmislegt athygli, einna helst umfjöllun Guðjóns um afskipti Davíðs af hjónavígslu Ólafs og Dorritar. Fjallað var um málið í fjölmiðlum hérlendis, meðal annars í greininni „Davíð sagði ágalla á hjónabandi forsetans“ í Fréttablaðinu og viðtalinu „Dularfullar njósnir í Lundúnum“ við Guðjón Friðriksson í Morgunblaðinu.

Guðmundur Sophusson, sýslumaður í Hafnarfirði, gaf Ólaf Ragnar og Dorrit saman á Bessastöðum þann 14. maí 2003. Í bók Guðjóns sagði að Guðmundur hefði fullvissað forsetann um að hann hefði undir höndum öll nauðsynleg gögn til að geta framkvæmt hjónavígsluna. 

Áður en Dorrit og Ólafur giftu sig hafði hún verið gift hönnuðinum Neil Zarach en þau verið skilin í aldarfjórðung. Zarach hafði síðan þá gengið í hjónaband í þrígang og sagði Guðjón að í slíkum tilfellum væri ekki farið fram á formlegt skilnaðarvottorð fyrir nýja hjónavígslu heldur drengskaparheit hlutaðeigandi látið nægja.

Dorrit Moussaieff og Ólafur Ragnar við jarðarför Davíðs Oddssonar í mars síðastliðnum.Vísir/Vilhelm

Málavextirnir eru raktir í umfjöllun Fréttablaðsins er þar kom fram að nokkrum vikum eftir hjónavígsluna hafi Guðmundur hringt í Sigurð G. Guðjónsson, lögfræðing Ólafs Ragnars, og beðið hann að hitta sig vegna hnökra á þeim gögnum sem hann hefði undir höndum um hjónabandið.

„Greinilega var mikil pressa á honum því hann var nánast óðamála í símanum,“ var haft eftir Sigurði í bókinni sem fór síðan og hitti Guðmund sem hafði tekið saman minnisblað í tveimur atriðum. 

Fyrra minnisblaðið laut að dánarbúi Guðrúnar Katrínar Þorbergsdóttur, eiginkonu Ólafs Ragnars, sem hafði ekki verið gengið formlega frá gagnvart dætrum þeirra hjóna en úr því var bætt eftir fundinn. Seinna minnisblaðið sneri að því hvort Sigurður gæti aflað pappíra um að hjónabandi Dorritar og fyrrverandi manns hennar væri lokið. 

Sigurður G. Guðjónsson var lögmaður Ólafs á þessum tíma.Vísir/Friðrik Þór

Sigurður hafi sagst mundu ganga úr skugga um það hvaða pappíra væri hægt að fá umfram fyrirliggjandi gögn. Þegar óskað var eftir vottorði frá Bretlandi fannst tölvuskráning um skilnað Dorritar og Zarach en dýpra hefði verið á vottorði um endanlega staðfestingu skilnaðarins. Sigurður hafi útskýrt fyrir Guðmundi að það myndi taka nokkrar vikur að afla þess.

Sigurður fékk í kjölfarið símhringingu frá Hagstofunni, sem þá heyrði undir forsætisráðuneytið, og var honum tilkynnt að ekki væri hægt að skrá hjónabandið vegna fyrrgreindra hnökra. Vegna þessa væri ekki hægt að skrá Dorrit til heimilis að Bessastöðum og yrði hún að sækja um dvalarleyfi á Íslandi á meðan þessum formsatriðum væri ekki fullnægt.

Sigurður sótti þá um dvalarleyfi fyrir Dorrit meðan beðið var eftir vottorðinu. Þá sagðist hann hafa verið undir stöðugri pressu frá Hagstofunni í júlímánuði 2003 að skila hjúskaparstöðuvottorði Dorritar þótt fyrir lægi að það myndi taka nokkrar vikur.

„Óskiljanlegt og óverjandi með öllu“

Málinu var þó ekki lokið því föstudaginn 31. júlí barst Ólafi bréf frá Davíð Oddssyni forsætisráðherra, um hjónavígsluna. Skrifaði Davíð að honum þætti miður að þurfa að senda Ólafi „þessa nótu“ en „óhjákvæmilegt“ væri að gera athugasemdir við framkvæmd hjónavígslunnar á Bessastöðum.

„Sýslumaðurinn, sem framkvæmdi athöfnina að kröfu forsetans, þrátt fyrir að formskilyrða, sem allir verða að sæta að lögum, hafi ekki verið gætt, segist hafa gert ítrekaðar tilraunir til að fá rétt gögn í hendur, enda hefði forsetinn gefið drengskaparloforð um að slík gögn bærust strax dagana eftir hjónavígsluna, en nú er liðið á þriðja mánuð frá vígslunni!“ stóð í bréfinu.

Davíð Oddsson á Alþingi árið 2003, sama ár og hann sendi Ólafi bréfið.Vísir/Vilhelm

Ljóst væri að sýslumanni hefðu orðið á mistök að verða við óskum forsetans um framkvæmd hjónavígslu, enda „loforð af þessu tagi ekki tekin gild í tilvikum annarra“. 

„Naumast þarf að árétta að allir eiga að vera jafnir fyrir lögunum en þó verður að telja að enn gætilegar verði að fara þegar þjóðhöfðinginn sjálfur á hlut að máli. Þá er þess að geta að hagstofustjóri hefur einnig áhyggjur af málinu, enda hefur Þjóðskrá ekki getað framkvæmt viðeigandi skráningar tengdar brúðhjónunum og hefur hagstofustjóri tjáð hagstofuráðherra að auk framangreindra annmarka hafi ekki verið gerðar viðeigandi ráðstafanir til að unnt sé að skrá lögheimili eiginkonunnar að Bessastöðum eins og brúðhjónin óskuðu eftir á hjónavígsluskýrslu,“ sagði einnig í bréfinu.

Forráðamenn Þjóðskrár og sýslumaður hefðu margoft haft samband við Sigurð G. Guðjónsson, lögmann brúðgumans, án fullnægjandi árangurs. 

Ólafi þótti bréf Davíðs skrítið.Vísir/Vilhelm

„Er óskiljanlegt og óverjandi með öllu að ekki hafi verið bætt úr þeim ágöllum sem á vígslunni voru og því sem að öðru leyti á vantar til að ganga megi frá færslum Þjóðskrár með ágallalausum hætti. Verður að krefjast þess að úr öllum þeim ágöllum verði bætt án tafar, enda er þetta mál allt hið vandræðalegasta og óheppilegt hvernig til þess var stofnað,“ sagði að lokum.

Ólafur hafi lesið bréfið, hringt beint í Davíð og sagst hafi fengið frá honum „skrýtið bréf“. Forsetinn útskýrði í kjölfarið málavexti fyrir forsætisráðherranum og lauk samtalinu þannig að Davíð sagðist mundu athuga málið og tala við Ólaf eftir helgina. Hins vegar hafi Davíð aldrei hringt aftur og málinu lauk þar með. Hjúskaparstöðuvottorð Dorritar hafi svo barist frá Bretlandi stuttu síðar. 

Davíð fyrirlitið Ólaf og viljað gera hann að athlægi

Sigurður G. Guðjónsson, þáverandi lögfræðingur Ólafs, sagði á sínum tíma að málið væri tortryggilegt, meðal annars í ljósi þess að sifjamál væru á valdssviði dómsmálaráðuneytisins en ekki forsætisráðherra. Velti hann því einnig fyrir sér hvernig Davíð vissi af samskiptum hans við sýslumanninn í Hafnarfirði.

Sigurður sagði Davíð fyrirlíta Ólaf.Vísir/Lýður Valberg

„Ef ógilda á hjúskap þarf auðvitað að höfða mál til að ógilda hann. Þegar ég sá bréfið hjá forsetanum sagði ég honum að hann yrði að setja það í skjalasafn forsetaembættisins. Hann væri sjálfur með allt sitt á hreinu þó að það tæki smátíma að fá gögnin um skilnað Dorritar. Hins vegar væri það stórfrétt að forsætisráðherra, sem ekki færi með dómsvald, væri að skipta sér af þessu,“ var haft eftir Sigurði í bókinni. 

Sigurður taldi að Davíð hafi ætlað að leka því út að hjónabandið væri ógilt og gera forsetahjónin að athlægi á heimsvísu. „Þetta er maður sem fyrirlítur forsetann og taldi sig þarna vera búinn að ná honum í net sem Ólafur kæmist ekki úr,“ var haft eftir Sigurði.

Vegið að heiðri hjónanna

Guðjón Friðriksson var jafnframt ómyrkur í máli í viðtalinu við Morgunblaðið og sagði að túlka mætti bréf Davíðs sem aðför að forsetahjónunum, ekki síst heiðri Dorritar. Auk þess væri sýslumaðurinn í Hafnarfirði vændur um embættisafglöp í bréfinu.

„Bréfið frá Davíð til Ólafs Ragnars er afskaplega sérkennilegt svo ekki sé meira sagt,“ sagði Guðjón í viðtalinu.

Guðjón taldi bréfið vega að heiðri Dorritar.Vísir/Lýður

„Þar er beinlínis vegið að heiðri forsetans og ekki síst forsetafrúarinnar. Ég býst við að þetta bréf komi lesendum á óvart því það hefur ekki farið hátt. Það lítur út fyrir að settar hafi verið af stað einhvers konar njósnir um feril Dorritar í London til að koma höggi á forsetann,“ sagði hann.

„Dorrit fékk upphringingar í London þar sem henni var sagt að spurst hefði verið fyrir um hana. Vitneskjan, sem grundvallaðist á þessari njósn í London, var augljóslega fyrir hendi í forsætisráðuneytinu og Davíð virðist hafa gert tilraun til að koma höggi á forsetann og gera hann að athlægi á grundvelli meints ólöglegs hjónabands. Sú túlkun var þó byggð á fullkomnum misskilningi eins og kemur fram í bókinni,“ sagði Guðjón við Morgunblaðið. 

Ólafur Ragnar Grímsson og Davíð Oddsson á góðri stundu.

Guðjón var í viðtalinu einnig spurður út í þá andúð Davíðs á Ólafi Ragnari sem kæmi fram í bókinni - Davíð væri beinlínis í hlutverki „vonda mannsins“. Guðjón sagði að greinilegt væri að Davíð fyrirliti Ólaf og skapferli hans sem valdsmann væri mjög svipað Jónasi frá Hriflu.

„Slíkir menn skipta fólki upp í vina- og óvinalið. Þeir vilja hafa fullkomið vald og hlýðni og ef menn hlýða ekki eru þeir miskunnarlaust settir út af sakramentinu. Slíkir menn verða gríðarlega umdeildir. Ólafur Ragnar er auðvitað fyrirferðarmikil persóna þannig að það var kannski ekki von á góðu þegar tvö svona stórveldi mættust,“ sagði Guðjón.

Ekki kemur á óvart að Sigurður hafi komið Ólafi til varnar verandi lögfræðingur hans. Þá verður einnig að lesa afstöðu Guðjóns út frá sambandi hans við Ólaf á þessum tíma og myndinni sem er dregin upp af forsetanum í Sögu af forseta

Kápa bókar Guðjóns um forsetatíð Ólafs.

Bókin fékk nefnilega nokkuð slæmar viðtökur hjá gagnrýnendum, einna helst vegna þess hversu lítið krítískur Guðjón var með Ólaf, embættisverk hans og þátt í útrásinni fyrir efnahagshrunið.

Í tveggja stjörnu dóminum „Flinkur kall, forsetinn“ um bókina í Fréttablaðinu sagði að hún væri „glansmynd af embættismanni og fyrrum stjórnmálamanni“ og þar spurt hvers vegna hún hefði verið skrifuð.

Heimspekingurinn Jón Ólafsson skrifaði tveggja stjörnu dóminn „Þeir kunna þetta, þessir strákar“ um bókina í Lesbók Morgunblaðsins og sagði að hún væri „ein samfelld lofræða á 566 blaðsíðum“. Jón sagði að þó Guðjón tíndi til gagnrýni á Ólaf í bókinni þá væri hún yfirleitt léttvæg fundin eða henni stillt upp sem hrósi. Heilt yfir virtust gagnrýnendur á því að bókin væri heimild um þau viðhorf sem ríktu fyrir hrun og meðvirknina með útrásinni.

Sýslumaður tjáir sig, bréfið metið og Davíð þögull

Daginn eftir að fjölmiðlar fjölluðu um bréf Davíðs þá náði Fréttablaðið tali af Guðmundi Sophussyni, sýslumanninum sem gaf hjónin saman. Hann var staddur erlendis, sagðist ekki hafa kynnt sér fréttir af málinu og vildi því ekki tjá sig um það að öðru leyti en að hann teldi að hjónavígslan hafi verið fullkomlega lögleg.

„Ég hefði aldrei framkvæmt slíka hjónavígslu nema ég teldi að hún hefði verið fullkomlega lögleg og ég tel að hún hafi verið það,“ sagði Guðmundur um hjónavígslu forsetahjónanna.

Ólafur Ragnar og Dorri við setningu Agnesar M. Sigurðardóttur sem biskups árið 2012.Vísir/Anton

Í sömu umfjöllun Fréttablaðsins var rætt við Trausta Fannar Valsson, lektor í stjórnsýslurétti við Háskóla Íslands, um það hvort Davíð hefði farið út fyrir verksvið sitt.

„Af því að lesa þetta bréf getur maður ekki fullyrt að þáverandi forsætisráðherra hafi með því beinlínis farið út fyrir verksvið sitt eða brotið með skýrum hætti gegn reglum um verkaskiptingu innan stjórnsýslunnar,“ sagði Trausti um bréf Davíðs.

Trausti Fannar er í í dag dósent í stjórnsýslurétti.

Hann benti á að Hagstofa Íslands hafi farið með málefni sem vörðuðu þjóðskrána og Davíð verið ráðherra hennar. 

„Það hefur þó væntanlega ekki verið hefðbundið að ráðherra hlutaðist til með þessum hætti um meðferð einstakra mála, án þess að ég þekki það,“ sagði hann. 

Þá sagði Trausti að ekki væri nauðsynlegt að skilja bréfið þannig að Davíð væri að skikka forsetann til að fylgja tilmælum sýslumanns, að öðru leyti en því sem tengdist hlutverki Hagstofunnar.

Davíð tjáði sig hins vegar ekki við Fréttablaðið þegar blaðamenn þess leituðu svara hjá honum um málið. Raunar virðist hann ekkert hafa tjáð sig um málið opinberlega, hvorki þegar fjallað var um málið né síðar. Hann hafði líka neitað því að ræða við Guðjón þegar hann var að skrifa bókina.

Ólafur Ragnar hefur ekki verið eins þögull og Davíð um deilur þeirra tveggja. Fyrir tveimur árum gaf hann út bókina Þjóðina og valdið sem fjallaði um fjölmiðlafrumvarpið og Icesave-málið. Bókin byggði á dagbókarfærslum Ólafs frá þeim tíma og hægt að lesa þar langar færslur Ólafs um Davíð.

„Hann virðir ekki lengur neinar stjórnarfarsreglur eða siðalögmál; er með puttana í lögreglu- og skattarannsóknum, hótar, er með dylgjur, ósvífni, nánast eins og í þriðja heims landi þar sem valdið og ógnin ráða öllu; lán að hann hefur ekki her eða leynilögreglu til að beita. Hugsar og hegðar sér eins og fasisti; valdið réttlætir allt. Út frá þessu einu væri siðferðislega rétt vegna lýðræðisins í landinu að setja honum stólinn fyrir dyrnar með því að vísa málinu til þjóðarinnar,“ skrifaði Ólafur um Davíð og fjölmiðlafrumvarpið umdeilda árið 2004.

#afskipti #davíð #hafði #hjónabandi #þegar


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262918309d/thegar-david-hafdi-af-skipti-af-hjona-bandi-olafs-og-dorritar

📰 Aðrar fréttir

Rannsaka manndráp í Kópavogi
📅 09.08.2026 👁️ 0
Rannsaka manndráp í Kópavogi
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar manndráp sem framið var á Kársnesi í Kópavogi fyrr í dag.Þetta herma heimildir RÚV.Lögreglan á höfuðborgarsvæ...
Rann­saka mann­dráp á Kársnesi - Vísir
📅 09.08.2026 👁️ 1
Rann­saka mann­dráp á Kársnesi - Vísir
Rúv greinir frá þessu. Fyrr í dag sendi lögreglan frá sér tilkynningu vegna alvarlegrar líkamsárásar í heimahúsi í Kópavogi. Lögreglu barst tilkynning...
Mikill við­búnaður lög­reglu í Vogunum - Vísir
📅 09.08.2026 👁️ 1
Mikill við­búnaður lög­reglu í Vogunum - Vísir
Hvorki Hjördís Sigurbjartsdóttir, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, né lögreglumenn á vettvangi gátu veitt upplýsingar u...
Alvarleg líkamsárás í Kópavogi
📅 09.08.2026 👁️ 1
Alvarleg líkamsárás í Kópavogi
Karlmaður var fluttur á slysadeild eftir alvarlega líkamsárás í heimahúsi í Kópavogi í dag.Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborga...
Úkraína of spillt til að ganga í ESB, segir diplómati
📅 09.08.2026 👁️ 0
Úkraína of spillt til að ganga í ESB, segir diplómati
Úkraína of spillt til að ganga í ESB, segir diplómati Fréttin9. ágúst 2026Erlent, Evrópusambandið, ÚkraínustríðiðLeave a Comment ESB getur ekki hraðað...
Einn fluttur á slysa­deild í kjöl­far al­var­legrar líkams­á­rásar - Vísir
📅 09.08.2026 👁️ 0
Einn fluttur á slysa­deild í kjöl­far al­var­legrar líkams­á­rásar - Vísir
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá lögreglunni á Höfuðborgarsvæðinu. Þar kemur fram að lögreglu hafi borist tilkynning um málið um þrjúleytið í ...
Nokkrir særðir eftir skotárás í Holbæk í Danmörku
📅 09.08.2026 👁️ 1
Nokkrir særðir eftir skotárás í Holbæk í Danmörku
Nokkrir eru særðir eftir skotárás í Holbæk í Danmörku, um sextíu kílómetra vestur af Kaupmannahöfn. Lögregla greinir frá því að árásarmaðurinn gangi e...
„Svo­lítið eins og að vera á annarri plánetu“ - Vísir
📅 09.08.2026 👁️ 1
„Svo­lítið eins og að vera á annarri plánetu“ - Vísir
Seinast þegar fréttastofa sló á þráðinn til Konráðs Hólmgeirssonar og félaga höfðu þeir lent í slysi á flugbraut í höfuðborginni Bishkek þegar burðarv...
Líkamsárás í Kópavogi: Einn fluttur á slysadeild
📅 09.08.2026 👁️ 1
Líkamsárás í Kópavogi: Einn fluttur á slysadeild
Einn var fluttur á slysadeild eftir alvarlega líkamsárás í Kópavogi í dag. Fjölmennt lið lögreglu og sjúkraliðs sinnti útkallinu um klukkan þrjú í dag...
Lögregla rannsakar manndráp á Kársnesi
📅 09.08.2026 👁️ 1
Lögregla rannsakar manndráp á Kársnesi
Lögregla rannsakar manndráp á Kársnesi í Kópavogi í dag. Þetta herma heimildir fréttastofu.Í tilkynningu frá lögreglu segir að einn hafi verið handtek...
Drones spotted over German base days after Leipzig bomb incident
📅 09.08.2026 👁️ 1
Drones spotted over German base days after Leipzig bomb incident
Police are investigating a drone sighting over a miltary base reportedly used for housing Patriot missile system parts.
All private cars banned from Mt Teide on Wednesday and Thursday for meteor shower
📅 09.08.2026 👁️ 0
All private cars banned from Mt Teide on Wednesday and Thursday for meteor shower
Anyone planning to head up Mount Teide to watch the Perseids meteor shower needs to be aware of major access restrictions, as all private cars will be...
„Það er ekki hægt að mætast í miðjunni þegar kemur að lífi fólks“
📅 09.08.2026 👁️ 0
„Það er ekki hægt að mætast í miðjunni þegar kemur að lífi fólks“
Sindri Freyja Bjarnabur, sem oft er kölluð Sindri Sparkle, segist alltaf finnast hún þurfa að gera lítið úr ofbeldi sem hún verður fyrir. Hópur ungra ...
Rósa Björk segir já - Vísir
📅 09.08.2026 👁️ 1
Rósa Björk segir já - Vísir
Rósa gerir grein fyrir afstöðu sinni í Facebook-færslu. Hún telji skynsamlegt að segja já við áframhaldandi viðræðum um aðild að Evrópusambandinu. „Ti...
Björn Jón skrifar: Gamlar umræður um Evrópumálin
📅 09.08.2026 👁️ 1
Björn Jón skrifar: Gamlar umræður um Evrópumálin
Mynd Í góðæri ársins 1987 reis nokkur umræða um hvort rétt væri að heimila útlendi
Gangi Ís­land í Evrópu­sam­bandið verði fram­sal ríkis­valdsins veru­legt - Vísir
📅 09.08.2026 👁️ 0
Gangi Ís­land í Evrópu­sam­bandið verði fram­sal ríkis­valdsins veru­legt - Vísir
Þetta kom fram á Sprengisandi á Bylgjunni í morgun. Mikið hefur verið rætt um hvort það feli í sér algjört framsal á ríkisvaldinu gangi Ísland inn í E...
Forsætisráðherra boðar fundaröð í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar
📅 09.08.2026 👁️ 0
Forsætisráðherra boðar fundaröð í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra hefur boðað til fundaraðar víðs vegar um landið í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar um aðildarviðræður við E...
Netanjahú hafnar friðar­á­ætlun Trumps - Vísir
📅 09.08.2026 👁️ 1
Netanjahú hafnar friðar­á­ætlun Trumps - Vísir
Á ríkisstjórnarfundi í Ísrael í dag greindi Netanjahú frá því að Ísraelsmenn tækju ekki þátt í friðaráætluninni og hafni „fimmtán punkta skjalinu.“ Ís...
Man arrested after boat capsizes near Statue of Liberty killing woman and infant
📅 09.08.2026 👁️ 0
Man arrested after boat capsizes near Statue of Liberty killing woman and infant
A Good Samaritan vessel rescued 12 people from the water before police arrived, the US Coast Guard says.
Perez Hilton þarf að fara í ­að­gerð eftir sjálfsskaða í beinu streymi á TikTok - Vísir
📅 09.08.2026 👁️ 0
Perez Hilton þarf að fara í ­að­gerð eftir sjálfsskaða í beinu streymi á TikTok - Vísir
Frá þessu er greint í fjölda erlendra miðla en bandaríski fréttamiðillinn E! er einn þeirra. Þar kemur einnig fram að hann sé enn á sjúkrahúsi en að í...
Muni hlusta og taka væntingar, þrár og á­hyggjur til greina - Vísir
📅 09.08.2026 👁️ 0
Muni hlusta og taka væntingar, þrár og á­hyggjur til greina - Vísir
Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, hefur skipulagt það sem hún kallar hlustunarfundi vítt og breitt um landið í þeim tilgangi að hlusta á sjónar...
Langvarandi áreiti getur valdið skaða
📅 09.08.2026 👁️ 1
Langvarandi áreiti getur valdið skaða
Langvarandi áreiti getur valdið skaða Mar­grét Gríms­dótt­ir, fram­kvæmda­stjóri hjúkr­un­ar á Heilsu­stofn­un NLFÍ, og Sigrún Sig­urð­ar­dótt­ir, pró...
Euractiv: ESB-embættismenn skoða leiðir til að „hjálpa já-hliðinni“ á Íslandi
📅 09.08.2026 👁️ 0
Euractiv: ESB-embættismenn skoða leiðir til að „hjálpa já-hliðinni“ á Íslandi
Háttsettir embættismenn Evrópusambandsins eru sagðir skoða hvernig sambandið geti aðstoðað já-hliðina í þjóðaratkvæðagreiðslunni um framhald aðildarvi...
Einn fluttur á slysadeild eftir að bifhjól lenti á vegriði
📅 09.08.2026 👁️ 1
Einn fluttur á slysadeild eftir að bifhjól lenti á vegriði
Einn var fluttur á slysadeild eftir að bifhjól fór út af veginum um Sæbraut og lenti á vegriði á öðrum tímanum í dag. Tveir voru á hjólinu, ökumaður o...
Sæmilega stór borgarísjaki í Norðurfirði
📅 09.08.2026 👁️ 1
Sæmilega stór borgarísjaki í Norðurfirði
Borgarísjaka hefur rekið í Norðurfjörð á Ströndum, fyrr á árinu en oft áður. Sjá má ísjakann úti fyrir Norðurfirði, um fjóra kílómetra vestur af veður...
Grýtt á leið sinni heim úr Gleðigöngunni: „Þetta er ná­kvæm­lega á­stæðan fyrir því að við mætum“ - Vísir
📅 09.08.2026 👁️ 0
Grýtt á leið sinni heim úr Gleðigöngunni: „Þetta er ná­kvæm­lega á­stæðan fyrir því að við mætum“ - Vísir
Hún hafi verið á leið heim af Gleðigöngunni með eiginmanni sínum. Þau hafi verið „ótrúlega sátt eftir daginn“ og voru klædd í brúðarfötin sín, enda ný...
Þjóðin þekki ekki annað en öryggisvernd frá Banda­ríkjunum - Vísir
📅 09.08.2026 👁️ 0
Þjóðin þekki ekki annað en öryggisvernd frá Banda­ríkjunum - Vísir
„Við höfum ekki þekkt annað en öryggisvernd frá Bandaríkjunum,“ er haft eftir Boga Ágústssyni, fyrrverandi fréttamanni hjá Ríkisútvarpinu, í umfjöllun...
Orðið á götunni: Plottið mistókst – Baudenbacher Rússavinur vinnur með nei-sinnum
📅 09.08.2026 👁️ 0
Orðið á götunni: Plottið mistókst – Baudenbacher Rússavinur vinnur með nei-sinnum
Hannes Hólmsteinn Gissurarson og Ragnar Árnason, eftirlaunaþegar sem eitt sinn voru prófessorar við Háskóla Íslands, ná nú ekki upp í nefið á sér af b...
Kristrún boðar til hlustunarfunda
📅 09.08.2026 👁️ 1
Kristrún boðar til hlustunarfunda
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra boðar á samfélagsmiðlum til fundaraðar víða um land nú í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunar 29. ágúst um framh...
Ísraelsmenn hafna friðaráætlun Trumps
📅 09.08.2026 👁️ 0
Ísraelsmenn hafna friðaráætlun Trumps
Benjamín Netanjahú forsætisráðherra Ísraels segir að Ísraelsmenn muni ekki taka þátt í fimmtán punkta friðarsamkomulagi, sem svokallað friðarráð Donal...
Landhelgisgæslan með viðvörun vegna nýs hjúkrunarheimilis
📅 09.08.2026 👁️ 0
Landhelgisgæslan með viðvörun vegna nýs hjúkrunarheimilis
Landhelgisgæslan hefur gert athugasemd við áform um að breyta tveimur fjölbýlishúsum á Ásbrú í Reykjanesbæ í hjúkrunarheimili. Bendir varnarmálasvið G...
Er VG að snúast í afstöðunni til ESB? - Formaðurinn segir já 29. ágúst en áhrifamiklir flokksmenn ósammála
📅 09.08.2026 👁️ 0
Er VG að snúast í afstöðunni til ESB? - Formaðurinn segir já 29. ágúst en áhrifamiklir flokksmenn ósammála
Einhverjar hræringar og breytingar virðast vera að eiga sér stað innan Vinstri hreyfingarinnar-Græns framboðs þegar kemur að afstöðu flokksins til inn...
Kynlífsvinna hluti af fjölskylduhátíð Hinsegin daga? Rauða regnhlífin með eigið atriði í fyrsta sinn
📅 09.08.2026 👁️ 0
Kynlífsvinna hluti af fjölskylduhátíð Hinsegin daga? Rauða regnhlífin með eigið atriði í fyrsta sinn
Rauða regnhlífin, samtök fólks í kynlífsvinnu á Íslandi, tóku í dag í fyrsta sinn þátt í Gleðigöngunni í Reykjavík með eigið atriði. Samtökin greindu ...
Eight arrested as Guardia Civil smash Tenerife gang linked to 34 violent robberies
📅 09.08.2026 👁️ 0
Eight arrested as Guardia Civil smash Tenerife gang linked to 34 violent robberies
The Guardia Civil have dismantled what they describe as Tenerife's most active criminal gang involved in violent and intimidating robberies at busines...
Halla­laus fjár­lög ekki í spá fyrr en árið 2031: „Við höfum varað við þessu síðast­liðið ár“ - Vísir
📅 09.08.2026 👁️ 0
Halla­laus fjár­lög ekki í spá fyrr en árið 2031: „Við höfum varað við þessu síðast­liðið ár“ - Vísir
Samkvæmt núgildandi fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar er gert ráð fyrir hallalausum fjárlögum strax á næsta ári. Þrátt fyrir verðbólgutölur hafa Krist...
Ancient Roman shipwreck discovered off Sicily coast
📅 09.08.2026 👁️ 1
Ancient Roman shipwreck discovered off Sicily coast
Italy's culture minister says it is one of the most important underwater archaeological finds in years.
Mobile payment methods in betting what 2026 data actually shows
📅 09.08.2026 👁️ 1
Mobile payment methods in betting what 2026 data actually shows
A deposit used to mean typing out sixteen card digits, an expiry date, and a security code, all on a small phone keyboard, usually while trying to get...
Israel rejects Trump's 15-point plan for Gaza, Netanyahu says
📅 09.08.2026 👁️ 1
Israel rejects Trump's 15-point plan for Gaza, Netanyahu says
Israel's PM says its military will not pull-out from Gaza until Hamas is "genuinely" disarmed.
Ný skýrsla AGS og um­merki um snjó­flóð á hafs­botni - Vísir
📅 09.08.2026 👁️ 0
Ný skýrsla AGS og um­merki um snjó­flóð á hafs­botni - Vísir
Stefán Már Stefánsson, prófessor emerítus við lagadeild Háskóla Íslands, fullyrðir að gangi Ísland í Evrópusambandið verði framsal ríkisvaldsins verul...
Einn slasaður eftir mótórhjólaslys á Sprengisandsleið
📅 09.08.2026 👁️ 0
Einn slasaður eftir mótórhjólaslys á Sprengisandsleið
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út í morgun eftir að maður slasaðist í mótorhjólaslysi á miðhálendinu.Slysið varð nærri Þórisvatni á Sprengisands...
Ljónið, Karls­vagninn og reiki­stjörnur gætu stolið senunni þann 12. ágúst - Vísir
📅 09.08.2026 👁️ 0
Ljónið, Karls­vagninn og reiki­stjörnur gætu stolið senunni þann 12. ágúst - Vísir
Þessi er fimmti í röð fróðleiksmola á Vísi sem munu birtast reglulega næstu vikuna þangað til að almyrkvi fer yfir sólu á sjötta tímanum síðdegis tólf...
„Svo­lítið sér­stakt“ að nætur­vaktin hafi sinnt fleiri út­köllum - Vísir
📅 09.08.2026 👁️ 0
„Svo­lítið sér­stakt“ að nætur­vaktin hafi sinnt fleiri út­köllum - Vísir
Frá þessu er greint í færslu sem birt var á Facebook-síðu Slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu áðan en þar segir að næturvaktin hafi sinnt fimmtíu og þ...
Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss á Sprengi­sands­leið - Vísir
📅 09.08.2026 👁️ 0
Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss á Sprengi­sands­leið - Vísir
Að sögn Einars Valssonar hjá Landhelgisgæslunni óskaði Hálendisvakt Landsbjargar eftir aðstoð Gæslunnar við flutning til aðhlynningar en slysið hafi á...
Brotaþolar fluttir á slysa­deild og allar á­rásirnar til rann­sóknar - Vísir
📅 09.08.2026 👁️ 0
Brotaþolar fluttir á slysa­deild og allar á­rásirnar til rann­sóknar - Vísir
Þetta staðfestir Hjördís Sigurbjartsdóttir, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við blaðamann Vísis en hún sagði...
Jóhann Páll Jóhannsson: Verðum að ljúka viðræðum til að geta metið stöðuna
📅 09.08.2026 👁️ 0
Jóhann Páll Jóhannsson: Verðum að ljúka viðræðum til að geta metið stöðuna
Núna er rétti tíminn, með tilliti til stöðunnar í alþjóðamálum, fyrir okkur Íslendinga að sækja um aðild að Evrópusambandinu. Við erum í sterkri stöðu...
Fimm ára drengur skilinn eftir í bíl á há­lendinu - Vísir
📅 09.08.2026 👁️ 0
Fimm ára drengur skilinn eftir í bíl á há­lendinu - Vísir
Greint er frá atvikinu í Facebook-færslu í hópnum Bakland ferðaþjónustunnar en þar segir að foreldrarnir, erlendir ferðamenn, hafi skilið drenginn eft...
Formaður VG ætlar að segja já í atkvæðagreiðslunni
📅 09.08.2026 👁️ 0
Formaður VG ætlar að segja já í atkvæðagreiðslunni
Rósa Björk Brynjólfsdóttir, formaður Vinstri grænna, ætlar að greiða atkvæði með því að aðildarviðræður við Evrópusambandið verði hafnar á ný. Hún gre...
Tímalína yfir Trump, Grænland og atkvæðagreiðsluna 29. ágúst - Einfaldaði Ólafur Ragnar atburðarásina?
📅 09.08.2026 👁️ 0
Tímalína yfir Trump, Grænland og atkvæðagreiðsluna 29. ágúst - Einfaldaði Ólafur Ragnar atburðarásina?
Í umtöluðu viðtali í þættinum Spjallið með Frosta Logasyni á efnisveitunni Brotkast gagnrýndi Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands, mjö...
Átti að sýna „manneskjuna á bak við tölfræðina“ – nú er Sharif ákærður fyrir morð
📅 09.08.2026 👁️ 0
Átti að sýna „manneskjuna á bak við tölfræðina“ – nú er Sharif ákærður fyrir morð
Alþjóðasamband Rauða krossins og Rauða hálfmánans, IFRC, hefur fjarlægt úr opinberri birtingu teiknimynd sem samtökin létu gera um flóttasögu afganska...
Evrópumálin tekin fyrir í Sprengi­sandi - Vísir
📅 09.08.2026 👁️ 0
Evrópumálin tekin fyrir í Sprengi­sandi - Vísir
Fyrst ræðir Kristján við Stefán Má Stefánsson, prófessor emerítus, um fullveldi og sjálfstæði þjóðarinnar en hann er einn helsti sérfræðingur okkar um...