Einn var fluttur á slysadeild eftir alvarlega líkamsárás í Kópavogi í dag. Fjölmennt lið lögreglu og sjúkraliðs sinnti útkallinu um klukkan þrjú í dag. Einn hefur verið handtekinn í tengslum við árásina.
Tveir sjúkrabílar voru sendir á vettvang, samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu, sem staðfestir að einn hafi verið fluttur á slysadeild en vísar að öðru leyti á lögreglu.
Hjördís Sigurbjartsdóttir, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir einn hafa verið handtekinn vegna líkamsárásar í Kópavogi. Lögreglan gefur ekki upp frekari upplýsingar að svo stöddu.
Samkvæmt heimildum fréttastofu átti árásin sér stað á Kársnesi. Engar upplýsingar hafa fengist um líðan þess sem varð fyrir henni.
Fréttin var uppfærð eftir að lögregla staðfesti tíðindin.