Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra hefur boðað til fundaraðar víðs vegar um landið í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar um aðildarviðræður við ESB. Hún greinir frá því á Facebook að hún muni halda „hlustunarfundi“ á níu stöðum um landið.
Fundaröðin hefst í Reykjanesbæ á þriðjudag en henni lýkur í Reykjavík miðvikudaginn 26. ágúst, þremur dögum fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna.