Lögregla rannsakar manndráp á Kársnesi í Kópavogi í dag. Þetta herma heimildir fréttastofu.
Í tilkynningu frá lögreglu segir að einn hafi verið handtekinn vegna alvarlegrar líkamsárásar í Kópavogi um klukkan þrjú síðdegis. Fjölmennt lið lögreglu og sjúkraliðs sinnti útkallinu um klukkan þrjú í dag.
Tveir sjúkrabílar voru sendir á vettvang, samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu, sem staðfesti að einn hafi verið fluttur á slysadeild.
Vísir greinir frá því að mikill viðbúnaður lögreglu hafi verið við verslunarkjarna í Skeiðarvogi í Reykjavík. Minnst sex lögreglubílar og einn sérsveitarmaður hafi verið á vettvangi.
Upplýsingafulltrúi lögreglu vildi ekki tjá sig um málið eða hvort það tengdist aðgerðum lögreglu á Kársnesi.
Fréttin hefur verið uppfærð.