Nokkrir eru særðir eftir skotárás í Holbæk í Danmörku, um sextíu kílómetra vestur af Kaupmannahöfn. Lögregla greinir frá því að árásarmaðurinn gangi enn laus.
Danska ríkisútvarpið segir að árásin hafi verið gerð í félagslegu húsnæði í borginni. Samkvæmt upplýsingum miðilsins er enginn látinn.
Christina Krzyrosiak, borgarstjóri Holbæk, greinir frá því á Facebook að lögregla telji skotárásina tengjast uppgjöri glæpagengja.