Benjamín Netanjahú forsætisráðherra Ísraels segir að Ísraelsmenn muni ekki taka þátt í fimmtán punkta friðarsamkomulagi, sem svokallað friðarráð Donalds Trump Bandaríkjaforseta setti saman. Reuters greinir frá þessu.
Trump hefur þegar greint frá því að Hamas hafi samþykkt samkomulagið, sem var kynnt í síðasta mánuði. Í því átti að felast full afvopnun Hamas og annarra vopnaðra hópa á Gaza. Það var þó háð því að Ísrael myndi draga herlið sitt frá Gaza og binda enda á allar árásir.
Reuters hefur eftir Netanjahú að Ísrael muni ekki draga herlið sitt frá Gaza fyrr en Hamas hafi afvopnast að fullu. Ekki kæmi til greina að Ísraelsmenn yrðu fyrri til.
Netanjahú sagði að nú tækju við frekari viðræður við Bandaríkjamenn. „Þeir eru með hugmyndir; sumar þeirra eru ásættanlegar, aðrar ekki.“
Ólíklegt er talið að Netanjahú fallist á miklar málamiðlarnir nú þegar stutt er í þingkosningar í landinu.
Vopnahlé á Gaza stendur enn, að nafninu til. Samstarfsflokkar Netanjahús í ríkisstjórn, sem eru lengst til hægri í ísraelsku ríkisstjórninni, hafa þó hvatt til atkvæðagreiðslu innan ríkisstjórnarinnar um framtíð þess.