Núna er rétti tíminn, með tilliti til stöðunnar í alþjóðamálum, fyrir okkur Íslendinga að sækja um aðild að Evrópusambandinu. Við erum í sterkri stöðu sem óvíst er að verði um aldur og ævi. Umræðan um þjóðaratkvæðagreiðsluna sem verður 29. ágúst hefur verið frekar heilbrigð og siðsamlegri en fyrir alþingiskosningar. Það er samt athyglisvert að stjórnarandstaðan skuli tala niður íslenskan sjávarútveg og segja að við séum ekki í fremstu röð í sjávarútvegi, halda því fram að við séum ekki stórveldi á evrópskan mælikvarða þegar kemur að sjávarútvegi.
Jóhann Páll Jóhannsson: Verðum að ljúka viðræðum til að geta metið stöðuna