Mótsgesturinn óheppni var rukkaður um umtalsverða fjárhæð í erlendri mynt. Vísir greindi í vikunni frá ferðum manns í Árbænum sem lék slíkt hið sama eftir og hafði meðal annars umtalsverðar fjárhæðir af eldri hjónum. Þóttist hann rukka tvö þúsund krónur íslenskar en rukkaði í raun um tvö þúsund evrur.
Mótsstjórn segir málið þegar hafa verið tilkynnt til lögreglu. Mótsgestir eru hvattir til að vera á varðbergi og láta orðið berast áfram. Hafi einhver orðið var við slíka háttsemi skuli sá hinn sami gefa sig fram við lögreglu.
Vísi barst í dag ábending um mann á bílastæðinu við Húsgagnahöllina á Höfða sem safnaði framlögum fyrir menningarsamtök. Samkvæmt ábendingunni talaði maðurinn ekki íslensku en bar klemmuspjald með íslenskum texta. Ástæða virðist vera fyrir landsmenn að vera á varðbergi.