Tónleikagestir streyma nú á tónlistarhátíðina Bergmál á Þingvöllum og er umferðin farin að þyngjast. Samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi gengur umferðin rólega en örugglega.
Árni Friðleifsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá umferðardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir að þrátt fyrir mikla umferð sé fallegt veður og lögreglan sé að gera sitt besta við að koma fólki á réttan stað.
„Það er bara gaman að þessu," segir Árni í samtali við mbl.is.
Lögregla hvetur alla gesti til að sýna þolinmæði og tillitsemi í umferðinni, með samvinnu sé hægt að gera daginn bæði öruggan og eftirminnilegan fyrir alla.
Einnig vill lögregla minna á flugbann sem er í gildi yfir tónleikasvæðinu á þingvöllum, bæði fyrir mönnuð flugför og dróna.
Dagskrá Bergmáls hófst klukkan 14 með opnunarathöfn og í kjölfarið steig hljómsveitin Kaleo á svið með acoustic tónleika. Um var að ræða fyrri tónleika Kaleo en þeir stíga aftur á svið klukkan 21 í kvöld.
Töluverður fjöldi fólks er þegar kominn á tónleikasvæðið og nýtur tónlistarveislunnar í einstöku blíðviðri í þjóðgarðinum á Þingvöllum.
